Fullkomið brúðkaup, hættulega fyndið
Ég fór í gærkvöldi að sjá Fullkomið brúðkaup hjá Leikfélagi Akureyrar. Ég get sagt ykkur það að aðra eins snilld hef ég ekki séð í langan tíma. Fullkomið brúðkaup er hættulega fyndið. Sýningin er keyrð áfram af miklu öryggi og hraða frá upphafi til enda. Fullkomið brúðkaup kom mér skemmtilega á óvart og óhætt að mæla með þessari kvöldstund. Það er öruggt að gestir fá vel fyrir aurinn sinn og geta að auki sparað lyf næsta mánuðinn því að slíkur hlátur hlýtur að lækna allt, en þó má benda hjartveikum á að taka sín áfram. Ég fór í gærkvöldi...
Sjá meira


