Leikfélag Reykjavíkur í 110 ár
Opið hús verður í Borgarleikhúsinu sunnudaginn 3. september milli 3-5. Boðið verður upp á fjölbreytta dagskrá þar sem allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Vetrarstarfið verður kynnt hjá Borgarleikhúsinu, Íslenska dansflokknum og Sönglist. Persónur úr verkum vetrarins spígspora um leikhúsið. Hvað gerist þegar Hitler og Ronja mætast? Eða Mozart og Tarzan? Boðið verður upp á veitingar fyrir unga sem aldna. Starfsfólk Borgarleikhússins, með leikhússtjórann í broddi fylkingar, bakar vöfflur fyrir gesti og gangandi, það verður heitt á könnunni og svaladrykkir fyrir börnin. Dagskrá með lifandi tónlist verður í tvo tíma. Geirfuglarnir spila, Laddi og Eggert Þorleifsson...
Sjá meira


