Ljósanámskeið
Leikfélag Selfoss býður upp á ljósanámskeið helgina 21. og 22. október Kennari er Benedikt Axelsson. Hann hefur verið atvinnuljósamaður í fjölda ára hjá bæði Þjóðleikhúsinu og Borgarleikhúsinu og undanfarin ár hjá Íslenska dansflokknum auk þess sem hann hefur unnið með nokkrum áhugaleikfélögum. Um er að ræða tvískipt námskeið. Laugardagurinn verður fyrir alla er koma á einhvern hátt nálægt vinnu í leikhúsinu; leikarar, leikstjórar, tæknimenn, leikmyndahönnuðir, sminkur, búningahönnuðir, stjórnir leikfélaga o.fl. Þessi hluti er mjög almenns eðlis um ljósavinnuna og fjallar um hluti eins og: Hvað er ljós, hvert er eðli ljóss, hvað getum við gert með ljósum og...
Sjá meira


