Leikfélag Fljótsdalshéraðs 40 ára
Leikfélag Fljótsdalshéraðs var stofnað á Egilsstöðum 31. ágúst 1966 og á því 40 ára afmæli um þessar mundir. Af því tilefni verður mikið um að vera á leikárinu og hófst það reyndar með því að leikritið Miðsumarnæturdraumar, eftir Guðjón Sigvaldason og Auðhumlu, var sett upp í Selskógi. Guðjón Sigvaldason leikstrýrði. Sýningin tókst vel og áhorfendur urðu um 300 manns. Í lok bæjarhátíðarinnar Ormsteitis, sem nú stendur yfir á Egilsstöðum, mun síðan leikfélagið halda upp á afmælið sitt með skemmtidagskrá. Hún hefst laugadaginn 26. ágúst klukkan 21:30 í Ormsteitistjaldinu. Dagskráin verður skemmtileg og fjölbreytt: Hátíðarræða, afturgöngur, söngur og gamanmál eru...
Sjá meira


