Vinnusmiðja Þjóðleikhússins 2006-2007
Vinnusmiðja Þjóðleikhússin hefur verið starfrækt undanfarin þrjú ár. Í vetur mun Félag um leiklist í skólastarfi, FLÍSS, sjá um starfsemi vinnusmiðjunnar í samráði við Fræðsludeildina. Markmið vinnusmiðjunnar er að gefa kennurum og leikurum sem áhuga hafa á kennslu tækifæri til að kynnast vinnubrögðum ýmissa listamanna og kennara og veita kennurum sem vilja nota leiklist í skólastofunni stuðning í viðleitni sinni. Undanfarin ár hefur allnokkur hópur sótt námskeið vinnusmiðjunnar og vonumst við til að svo verði áfram. Í vetur fáum við til okkar fimm einstaklinga sem allir hafa getið sér gott orð fyrir störf sín. Þeir koma úr ýmsum áttum en eiga það sameiginlegt að vinna við hinar ýmsu hliðar leiklistar og leiklistarkennslu. Munu þeir fyrst og fremst kynna sínar vinnuaðferðir fyrir kennurum og gefa þeim hugmynd um hvernig hægt er að nota þær í leiklistarkennslu, almennri kennslu og uppsetningum. Við munum hittast einu sinni í mánuði yfir veturinn, þrisvar fyrir jól og þrisvar eftir jól. Hér fyrir neðan er dagskrá Vinnusmiðjunnar og allar nánari upplýsingar. Staðsetning Húsnæði Fræðsludeildar Þjóðleikhússins, gamla Hæstaréttarhúsinu, Lindargötu 3. Verð og skráning: Eins og undanfarin ár þurfa þátttakendur að skrá sig fyrir allan veturinn. Við reynum að halda kostnaði í algjöru lágmarki og er einungis um að ræða kostnað vegna kennara á fræðslukvöldunum. Allur pakkinn, sex fræðslukvöld, kostar einungis 12.000 kr. Hægt er að skrá sig hjá FLÍSS á netfangið HYPERLINK "mailto:ogud@btnet.is" ogud@btnet.is Tími:...
Sjá meira


