Author: lensherra

Sex í sveit í Ólafsvík

Æfingar eru hafnar á gamanleiknum Sex í sveit eftir Marc Camoletti í íslenskun og staðfærslu Gísla Rúnars  Jónssonar. Um er að ræða bráðskemmtilegan og flókinn gamanleik sem gerist í sumarbústað hér á landi. Leikarar í verkinu eru 6 talsins, blanda af reyndum og óreyndum leikurum. Leikstjóri er Gunnsteinn Sigurðsson. Áætlað er að sýna um mánaðarmótin nóv/des í félagsheimilinu Klifi, Ólafsvík Ásamt leiksýningunni er í bígerð að halda sýningu um sögu leikfélagsins í tilefni af 50 ára afmæli...

Sjá meira

Amadeus í Borgarleikhúsinu

Amadeus eftir Peter Shaffer verður frumsýnt á stóra sviði Borgarleikhússins laugardaginn 21. október kl. 20.00. Leikstjóri er Stefán Baldursson Verkið fjallar um samband  Wolfgang Amadeus Mozart og Antonio Salieri, hirðtónskáld Austuríska keisarans á síðari hluta átjándu aldar. Verkið byggir á sögusögnum um dulafullan dauða Mozarts og þátt Salieri í honum. Salieri kvelst af afbrýði út í hinn unga snilling. Afbrýðin dregur hann til andstyggilegra aðgerða til að koma Amadeusi á kné og loks í dauðann. En hvor þeirra sigrar að lokum? Leikarar: Hilmir Snær Guðnason: Salieri  Víðir Guðmundsson: Mozart Birgitta Birgisdóttir: Konstansa Ellert Ingimundarson, Jóhanna Vigdís Arnardóttir, Pétur Einarsson,...

Sjá meira

Gosi frumsýndur á Sauðárkróki

Haustverkefni Leikfélags Sauðárkróks að þessu sinni er barna- og fjölskyldusöngleikurinn Gosi.  Þetta er leikverk Brynju Benediktsdóttur með söngvum eftir Þórarin Eldjárn við tónlist Sigurðar Rúnars Jónssonar.  Verkið er byggt á hinni heimsfrægu sögu um strengjabrúðuna Gosa eftir ítalann C. Collodi, en sagan kom fyrst út á bók árið 1873 og er því orðin rúmlega 230 ára gömul.  Leikstjóri er Þröstur Guðbjartsson en þetta er í fimmta sinn sem hann setur upp leikrit með Leikfélagi Sauðárkróks. Að þessari uppsetningu á Gosa koma um fjörutíu manns, þar af um 20 leikendur og í þeim hópi er mikið af bráðefnilegu ungu fólki...

Sjá meira

Leikfélag Siglufjarðar lætur ekki deigan síga

Hjá Leikfélagi Siglufjarðar standa yfir stífar æfingar á bráðskemmtilegu verki þeirra Eddu Björgvinsdóttur og Hlín Agnarsdóttur, Láttu ekki deigan síga Guðmundur.   Leikurinn gerist árið 1984 og fjallar um ´68 kynslóðina svokölluðu, sigra hennar og vonbrigði á gamansaman hátt.   Í leikritinu rifjar aðalpersónan, Guðmundur Þór, upp sögu sína þegar sonur hans Garpur Snær leitar ásjár hjá honum eftir að mamma hans hefur hent honum út. Saman fara þeir feðgar í ferðalag um fortíðina þar sem margt ber á góma, og hefst sagan á menntaskólaárum Guðmundar og er stiklað á stóru á fornum kvennavegi Guðmundar allt til ársins 1984.  L.S...

Sjá meira

Æfingar hafnar hjá Leikfélagi Dalvíkur

Nú eru hafnar æfingar á nýju leikverki hjá Leikfélagi Dalvíkur. Verkið samanstendur af 5 einþáttungum sem allir eru skrifaðir af leikskáldum úr Dalvíkurbyggð. Þættirnir eiga það sameiginlegt að þeir gerast í raðhúsi og það á einum og sama deginum. Höfundar einþáttunganna eru 6, en þeir eru Lovísa María Sigurgeirsdóttir, Freyr Antonsson, Júlíus Júlíusson, Ingibjörg Hjartardóttir, Arnar Símonarson og Sólveig Rögnvaldsdóttir. Ekki hefur enn verið ákveðið yfirheiti verkanna. Leikstjóri er Saga Jónsdóttir. Þórarinn Blöndal hannar leikmynd og Pétur Skarphéðinsson lýsingu. Leikendur eru 17 talsins og margir koma fram í fleiru en einu hlutverki. Áætlað er að frumsýna þetta nýja leikverk um miðjan nóvember. Verkið verður sýnt fram undir miðjan desember, þá verður farið í jólafrí, en síðan er stefnt aftur að sýningum á milli jóla og...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert