Sænsk gestasýning í Þjóðleikhúsinu
Fimmtudaginn 19.október kl. 20.00 og föstudaginn 20.október kl. 20.00 sýnir Cinnober leikhúsið frá Gautaborg leikritið Suzannah eftir Jon Fosse á Smíðaverkstæði Þjóðleikhússins. Leikritið fjallar um Súsönnu Ibsen sem í 48 ár var eiginkona norska skáldjöfursins Henriks Ibsens. Höfundurinn kallar verkið einleik fyrir þrjár leikkonur. Einleikurinn skiptist milli þriggja radda, sem endurspegla líf Súsönnu á þremur aldursskeiðum hennar, þegar hún er ung kona, miðaldra og gömul. Leikstjórinn Svante Aulis Löwenborg hefur sagt að verkið sé ný tegund tónleikrits þar sem tónlistin tekur stundum völdin af orðinu. Tónlistin sem er mjög ríkur þáttur í verkinu er samin af Atla Ingólfssyni og í sýningunni er hún flutt af Göteborgs Kammarsolisterna sem er skipuð átta hljóðfæraleikurum en þeir eru á sviðinu allan tímann ásamt leikkonunum þremur. Sara Estling leikur Súsönnu unga, Helén Hansson leikur hana miðaldra og Lena Nordberg leikur hana á efri árum. Súsanna Ibsen var fædd 1836 og lést 1914. Um hana og líf hennar eru ekki til miklar heimildir. Bergliot Ibsen sem giftist Sigurði, syni þeirra Ibsenhjóna, skrifaði bók um fjölskylduna sem hún nefndi De tre eða Þau þrjú en sú bók er í flokki þekktustu endurminningabóka Norðmanna. Bókin dregur upp frekar jákvæða mynd af fjölskyldu norska skáldjöfursins, en lýsingarnar á Súsönnu eru þó ólíkar öðrum lýsingum sem til eru af henni. Í bókinni er henni lýst sem gáfaðri og víðsýnni konu með mikla kímnigáfu, sem tókst einkar vel að bregðast við og kljást við þá erfiðleika sem komu upp...
Sjá meira


