Author: lensherra

Alveg brilljant skilnaður

Einleikur Eddu Björgvinsdóttur , sem frumsýndur var í mars árið 2005, hefur verið sýndur 130 sinnum fyrir fullu húsi og við fádæma undirtektir áhorfenda um allt land, en rúmlega 20 þúsund manns hafa nú þegar séð sýninguna. Það er því óhætt að segja að sýningin Alveg brilljant skilnaður er einhver sú vinsælasta sem sýnd hefur verið undanfarin ár.   Borgarleikhúsið hefur ákveðið, vegna fjölda áskoranna, að bjóða upp á 4 sýningar á þessum drepfyndna einleik nú í haust og eru allra síðustu forvöð að berja augum einleikinn frábæra.   Leikritið fjallar um miðaldra konu, Ástríði Jónu Kjartansdóttur sem lendir...

Sjá meira

Herra Kolbert

Laugardagskvöldið 28. október verður Herra Kolbert eftir David Gieselmann frumsýnt hjá Leikfélagi Akureyrar. Hér er á ferðinni margverðlaunað leikrit sem sýnt hefur verið um allan heim og vakið mikla athygli. Í verkinu tvinnast saman ómótstæðilegur húmor og hvöss ádeila. Hver er herra Kolbert? Hver er með númer 26, sleppa chillíinu? Er Herra Kolbert í kistlinum á stofugólfinu? Steindauður? Hver var með hvítlauks bolognese með eggi? Ef Herra Kolbert er dauður hver drap hann þá? Og hvernig kemur pizzusendillinn inn í þetta allt saman? Venjulegt matarboð hjá venjulegu fólki tekur óvænta stefnu og þegar kvöldið er liðið er allt breytt....

Sjá meira

Fjölbreytt Jon Fosse hátíð í Þjóðleikhúsinu

Jon Fossehátíð verður haldin í Þjóðleikhúsinu dagana 28. og 29.október n.k.í samvinnu við Norska sendiráðið í Reykjavík.  Jon Fosse sjálfur verður aðalgestur hátíðarinnar ásamt sænska leiklistargagnrýnandanum Leif Zern sem hefur skrifað bók um skáldið. Leif Zern hefur starfað sem menningarritstjóri á dagblaðinu Expressen en er þekktastur sem einn helsti virtasti leiklistargagnrýnandi Svía, en hann skrifaði áralangt um leiklist og leikhús í Dagens Nyheter. Þriðji gestur hátíðarinnar er Berit Gullberg útgefandi frá Stokkhólmi en hún hefur átt veg og vanda að því að kynna verk Jon Fosse um allan heim. Á þessu ári sýndi Þjóðleikhúsið Sumardag eftir Jon Fosse á Smíðaverkstæðinu en það...

Sjá meira

Leiklistarskóli BÍL auglýsir:

Námskeið í stjórnun leikfélaga, fyrirlestrar og umræður. Haldið laugardaginn 18. nóvember 2006 frá kl. 10.00 til 17.00 í gamla Lækjarskóla í Hafnarfirði. Síðasti skráningardagur í dag, 10. nóvember! Fjallað verður um eftirfarandi með meiru: Verkaskipting stjórnarmanna, gerð skipurita Starfssvið framkvæmdastjóra leiksýninga Fjármál; bókhald og styrkumsóknir Samningar við leikstjóra Verkefnaval – nýsköpun Markaðssetning Leiklistarvefurinn Leiklistarskóli BÍL Námskeið innan félaga Vinaleikfélög Þátttaka í erlendu samstarfi Ársrit Bandalagsins og varðveisla upplýsinga Samstarfssamningar milli leikfélaga og sveitarfélaga Fyrirlesarar verða stjórnarmenn, skólanefndarmenn og starfsmenn Bandalagsins. Námskeiðið er ókeypis og öllum opið meðan húsrúm leyfir. Þátttöku þarf að tilkynna fyrir 10. nóvember á netfangið info@leiklist.is eða í síma...

Sjá meira

Vinnusmiðja FLÍSS og Þjóðleikhússins

Næsta vinnusmiðja FLÍSS og Fræðsludeildarinnar verður miðvikudagskvöldið 25. október kl. 20.00 – 22.00.   Sigríður Valsdóttir leiklistarmeðferðarfræðingur mun fjalla um leiklistarmeðferð (dramatherapy) og notkun hennar í skólastarfi.   Sigríður er menntaður kennari frá KHÍ og kenndi í 2 ár áður en hún fór í framhaldsnám í leiklistarmeðferð (drama therapy) í New York háskóla. Hún útskrifaðist þaðan með mastersgráðu og hefur síðastliðin 3 ár kennt leiklist í Hagaskóla og sinnt nemendum með tilfinningaleg og/eða félagsleg vandamál, bæði í einstaklingsvinnu og hópavinnu auk þess sem hún hefur sett upp söngleiki með krökkunum á vorin. Hún starfar líka hjá Ný leið ráðgjöf...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert