Author: lensherra

Höfundur Herra Kolbert til Íslands

David Gieselmann, höfundur Herra Kolberts, er væntanlegur til Íslands til að sjá rómaða uppfærslu á leikriti sínu hjá LA. Verk Gieselmanns hafa verið sýnd um allan heim en Herra Kolbert er hans þekktasta verk en það hefur verið sýnt um nær alla Evrópu auk Bandaríkjanna, Ástralíu og Suður Ameríku. Gieselmann þáði boð um að koma til Akureyrar í kjölfar afar jákvæðra dóma og viðbragða áhorfenda sem sýningin hefur hlotið. Sérstök hátíðarsýning verður haldin í tilefni komu hans laugardagskvöldið 9. desember og mun höfundurinn taka þátt í umræðum að sýningu lokinni.   David Gieselmann er fæddur árið 1972 og ólst...

Sjá meira

Brot af því besta

Upplestrakvöld eru orðin fastir liðir í Borgarleikhúsinu á aðventunni. Rithöfundar munu þetta árið lesa úr verkum sínum fimmtudagskvöldið 30. nóvember kl. 20.00 og fimmtudagskvöldið 7. desember kl. 20.00.   Fimmtudagskvöldið 30. nóvember lesa höfundarnir: Auður Jónsdóttir, Linda Vilhjálmsdóttir, Árni Þórarinsson, Bragi Ólafsson, Einar Már Guðmundsson og Sigurjón Magnússon úr verkum sínum. Fimmtudagskvöldið 7. desember er síðan komið að Árna Björnssyni, Ingunni Snædal, Óskari Árna Óskarssyni, Stefáni Mána, Steinari Braga og  Þórunni Erlu Valdimarsdóttur að lesa úr sínum verkum.   Einnig verður á boðstólnum léttur jóladjass og kaffihúsastemning. Allir eru velkomnir og er aðgangur...

Sjá meira

Æfingar hafnar á Svörtum ketti hjá LA

Hafnar eru æfingar á leikritinu Svartur köttur eftir Martin McDonagh. Leikritið er margverðlaunað og hefur víða vakið verðskuldaða athygli. Sömu sögu er að segja um fyrri verka McDonaghs, s.s. Koddamaðurinn, Halti Billi og Fegurðardrottningin frá Línakri sem öll hafa verið sýnd hérlendis. Frumsýning verður 20. janúar hjá LA í Samkomuhúsinu en þá eru liðin 100 ár frá fyrstu frumsýningu í húsinu. Leikarar, listamenn og starfsfólk hússins kom saman til samlestrar í vikunni og sem venja er á fyrsta samlestri voru þar kynntar hugmyndir að útliti sýningar og leið sem farinn verður við uppsetninguna. Mikill hugur var í hópnum og...

Sjá meira

Maður í mislitum sokkum

Leikdeild Umf. Íslendings er þessa dagana að sýna gaman-farsann Maður í mislitum sokkum eftir Arnmund Backman.   Leikarar eru átta talsins: Katrín Jónsdóttir  Hvanneyri, Friðrik Aspelund Hvanneyri, Elísabet Axelsdóttir Hvanneyri, Jón E. Einarsson Mófellsstaðakoti, Þórunn Harðardóttir Hvanneyri, Valdimar Reynisson Hvanneyri, Auður L. Arnþórsdóttir Hvanneyri og Þórunn Péturssdóttir Bæjarsveit. Leiksstjóri er Ása Hlín Svavarsdóttir Borgarnesi. Frumsýningin var  laugardagskvöldið 4. nóvember. Uppselt hefur verið á nærri allar sýningarnar og fólk skemmt sér hið besta. Um sýninguna:  Þetta stykki á erindi til allra, atburðir sem gerast í þjóðfélaginu er fólk eldist er þarna settur upp á skondinn og hnitmiðaðan hátt, þarna er...

Sjá meira

Leikfélag Mosfellssveitar frumsýnir Varaðu þig á vatninu

Miðvikudagskvöldið 22. nóvember klukkan 20:00 verður leikritið Varaðu þig á vatninu eftir Woody Allen frumsýnt hjá Leikfélagi Mosfellssveitar. Leikstjóri er Guðjón Þorsteinn Pálmarsson og taka átta leikarar þátt í sýningunni. Leikritið gerist á tímum kalda stríðsins og fjallar um bandaríska fjölskyldu sem leitar skjóls í bandaríska sendiráðinu í Vúlgaríu eftir að hafa tekið þar ljósmyndir á bannsvæði. Miðvikudagskvöldið 22. nóvember klukkan 20:00 verður leikritið Varaðu þig á vatninu eftir Woody Allen frumsýnt hjá Leikfélagi Mosfellssveitar. Leikstjóri er Guðjón Þorsteinn Pálmarsson og taka átta leikarar þátt í sýningunni. Leikritið gerist á tímum kalda stríðsins og fjallar um bandaríska fjölskyldu sem...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert