Leikfélag Hólmavíkur man hann Jörund
Leikfélag Hólmavíkur hefur nú æfingar á verkinu Þið munið hann Jörund, eftir Jónas Árnason. Leikstjóri er Skúli Gautason og stefnt er að frumsýningu þann 24. mars. Þið munið hann Jörund er eitt þekktasta verk þessa mikla leik- og tónskálds. Það hefur verið sett upp víða og tónlistin úr því er flestum kunn. Efni verksins er valdatíð Jörundar hundadagakonungs á Íslandi, og er þar brugðið upp skoplegri mynd af íslenskum bændalýð og dönskum embættismönnum, að ógleymdum Jörundi sjálfum og "hirð" hans. Leikfélag Hólmavíkur var stofnað árið 1981 og er því eitt af yngri leikfélögum landsins. Það hefur staðið fyrir öflugri...
Sjá meira


