Author: lensherra

Einu sinni var… Athugið breyttar dagsetningar!

Í vetur hefur leikfélagið Hugleikur flutt samsettar dagskrár í Þjóðleikhúskjallaranum. Í nóvember var sýnd dagskráin "Einu sinni var…" Dagskráin er spunnin úr gömlum örlagasögum sem ellefu manns segja úr eigin umhverfi og krydduð með tónlist, ýmist fornum stefjum eða tónlist sem tengist sögunum sem sagðar eru. Sýningin er afrakstur af námskeiði hjá Benedikt Erlingssyni og Charlotte Böving sem haldið var hjá félaginu í október. Vegna fjölda áskorana verður dagskráin endurflutt nú í febrúar. Sýningar verða sunnudaginn 18. og þriðjudaginn 20. febrúar og hefjast klukkan 20:00. Miðaverð er 1.000. krónur. Þetta er sýning sem áhugamenn um íslenska frásagnarhefð ættu ekki...

Sjá meira

Síldin kemur í Hörgárdalinn!

Leikfélag Hörgdæla hefur hafið æfingar á hinu sívinsæla leikriti Síldin kemur síldin fer eftir Kristínu og Iðunni Steinsdætur. Leikstjóri er Sunna Borg og tónlistarstjóri er Snorri Guðvarðarson. Leikritið lýsir lífi farandverkafólki á síldarárunum. Gleði þess og sorgum, vinnu, drykkju, ástum og samskiptum við heimafólk. Rauði þráðurinn er síðan togstreita síldarspekúlantsins við landeigandann sem á jörðina þar sem planið er og er hreint ekki hrifinn af síldarævintýrinu og því fólki sem safnast saman til að taka þátt í því. Vel á þriðja tug leikara taka þátt í sýningunni og stefnt er á að frumsýna seinni partinn í...

Sjá meira

Mistækur Draugadans Leikfélags MH

Það er alltaf áhugavert að fara á sýningar áhugaleikfélaganna í menntaskólunum. Þarna fer oft saman mikil sköpunarþörf, umtalsverðir hæfileikar og góð vinna leikstjóra og tæknifólks. Á meðan sum félögin róa á nokkuð örugg mið varðandi verkefnaval og krefjandi leiklistarsköpun eru önnur óhrædd við að taka áhættu í bæði verkefnavali og listrænum metnaði. Í þeim hópi er einna fremst í flokki Leikfélag Menntaskólans við Hamrahlíð sem hefur á síðustu árum sett upp margar áhugaverðar og krefjandi sýningar sem stundum hafa tekist afar vel og eins miður. Það má segja um sýningu þeirra Draugadans sem ég sá í Tjarnarbíó um helgina...

Sjá meira

Lagst í Leg

Vinna er nú hafin af fullum krafti við tæknilega eina mest krefjandi sýningu Þjóðleikhússins fyrr og síðar, en það er söngleikurinn Leg eftir Hugleik Dagsson. Undirbúningur hefur staðið yfir frá því í haust, en æfingar hófust af fullum krafti nú eftir áramótin. Verkið verður frumsýnt á stóra sviði Þjóðleikhússins 8. mars næstkomandi, en boðið verður upp á forsýningar á kjarakjörum fim. 1., fös. 2. og lau. 3. mars. Miðinn kostar einungis 1500 krónur. Í tengslum við sýninguna býður fræðsludeild Þjóðleikhússins upp á ókeypis námskeið fyrir þá sem tryggja sér miða á forsýningu fyrir þriðjudaginn 6. febrúar. Tíminn er því...

Sjá meira

Fiðlarinn á þakinu

Ungmennafélagið Máni í Nesjum á hundrað ára afmæli í ár. Í tilefni af því setur leikhópur félagsins upp stórsýningu í samstarfi við Leikfélag Hornafjarðar. Félögin frumsýna söngleikinn Fiðlarann á þakinu föstudaginn 2. febrúar. Leikstjóri sýningarinnar er Ingunn Jensdóttir. Ingunn er Hornfirðingum að góðu kunn því er hún bjó þar á árum áður setti hún upp sýningar bæði hjá Leikfélagi Hornafjarðar og Leikhóp Mána. Milli 50 og 60 manns koma að sýningunni. Tónlistarstjórn er í höndum Jóhanns Morávek en hann stjórnar og spilar með 5 manna hljómsveit sýningarinnar. Söng- og kórstjórn er í höndum Kristínar Jóhannsdóttur. Lýsingu hannaði Benedikt Þór...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert