Þú ert í blóma lífsins, fíflið þitt, á Dalvík
Leikfélag Dalvíkur og Dalvíkurskóli eru nú í samstarfi varðandi uppsetningu á leikverki fyrir unglinga sem verið að æfa þessa dagana. Leiklist er kennd í skólanum sem valgrein í 9. og 10. bekk og samtals 16 nemendur sækja þessa faggrein í vetur. Leiklistarhópurinn æfir nú í Ungó leikverkið Þú ert í blóma lífsins fíflið þitt ! eftir Davíð Þór Jónsson og Unglingadeild Leikfélags Hafnarfjarðar. Leiðbeinandi leikhópsins og leikstjóri uppfærslunnar er Arnar Símonarson. Hann er formaður Leikfélags Dalvíkur, en stjórn LD mun sérstaklega koma að skipulagningu og aðstoða við uppsetningu með ýmsum hætti. Að sögn Arnars er leiklistarhópurinn skemmtilega samansettur. Hann...
Sjá meira


