Author: lensherra

Léttleiki í Lyngbrekku

Gísli Einarsson skrifar: Góðir farsar eru alltaf kærkomin glæta í skammdeginu. Nóg er af hörmungum og leiðindum í heiminum sem oftar en ekki rata síðan á leiksvið og þykir reyndar fínt. Ég er hinsvegar þeirrar skoðunar að leikverk eigi fullan rétt á sér og vel það þó þau skilji ekkert annað eftir sig en óminn af hlátursrokunum. Ég hef nefnilega aldrei skilið til fullnustu þá kröfu að list þurfi að vera leiðinleg. Leikdeild Umf. Skallagríms sýnir: Sex í sveit. Leikstjóri: Rúnar Guðbrandsson. Leikendur: Ragnar Gunnarsson, Jónas Þorkelsson, Inga Hólmfríður Gunnarsdóttir, Þórdís Jónmundsdóttir, Þröstur Reynisson og Margrét Pétursdóttir. Sex í...

Sjá meira

Power of love í Austurbæ

Power of Love er komið aftur til landsins eftir leikferð til Króatíu og Slóveníu. Sýningar hefjast að nýju í mars, dagana 23., 24., 29. og 30. mars, í Silfurtunglinu í Austurbæ. Sýningar hefjast allar klukkan 20:00. Ath. Aðeins þessar 4 sýningar. Miðasala er í Austurbæ frá 13:00-17:00 og í síma 551-4700, einnig er hægt að nálgast miða á midi.is. Miðaverð er kr. 1500. Power of Love, hið fullkomna deit, fjallar um konu sem er að undirbúa mikilvægasta kvöld lífs síns. Hún ætlar að finna ástina og lifa hamingjusöm til æviloka. Til að ekkert fari úrskeiðis skipuleggur hún sig í...

Sjá meira

Leikhúsdagar í Þjóðleikhúsinu

Alþjóðasamtök leiklistarfólks, ITI, sem er ein af undirstofnunum UNESCO hafa frá 1962 haft 27. mars ár hvert sem Alþjóðlegan leiklistardag. Leiklistarsamband Íslands, sem er Íslandsdeild ITI, hefur frá stofnun sinni haldið upp á þennan dag og fengið hverju sinni málsmetandi listamann úr sínum röðum til að semja ávarp í tilefni dagsins. Að þessu sinni er það brúðuleikhúslistamaðurinn Bernd Ogrodnik, sem hefur búið og starfað á Íslandi síðustu ár og auðgað íslenskt leikhúslíf eftirminnilega. Þjóðleikhúsið tekur virkan þátt í því að opna dyr leikhússins í tilefni dagsins og treysta sambandið milli áhorfenda og leikhúsgesta og gerir það undir heitinu: Á sviðsbrúninni. Á föstudagskvöld 23. mars flytur Bernd Ogrodnik ávarp Alþjóða leiklistardagsins á Stóra sviðinu fyrir sýningu á Ímyndunarveikinni eftir Moliére sem er frönsk gestasýning. Á laugardagskvöld 24. mars eftir sýningu á söngleiknum Legi eftir Hugleik Dagsson gefst gestum kostur á að spjalla við leikarar úr sýningunni og leggja fyrir þá spurningar úr sal. Sýningin hefst kl. 20.00. Að lokinni seinni sýningu á Sitji guðs englar eftir Guðrúnu Helgadóttur sunnudaginn 25.mars munu gestir fá tækifæri til að spjalla við leikara úr sýningunni og leggja fyrir þá spurningar. Sýningin hefst kl. 17.00. Vigdís Jakobsdóttir deildarstjóri fræðsludeildar leikhússins stýrir þessum umræðum bæði kvöldin. Þess má svo geta að um þessar mundir sýnir Bernd Ogrodnik brúðusýninguna Pétur og úlfinn eftir Sergei Prokofief í Kúlunni í Þjóðleikhúsinu við góðar undirtektir barna og fullorðinna. Leiklistardögunum lýkur...

Sjá meira

Leikskáld athugið!

Leikfélag Akureyrar hyggst ráða eitt til tvö leikskáld til að skrifa handrit að leikverki fyrir leikhúsið. Stefnt er að uppsetningum á árunum 2008–2010. Áhugasamir sendi hugmynd að leikverki til leikhússins ásamt ferilskrá höfundar fyrir 25. apríl n.k. merkt „leikskáld“.   Leikskáld sem starfa fyrir Leikfélag Akureyrar, starfa skv. kjarasamningi leikhússins og Rithöfundasambands Íslands. Nú þegar eru tvö ný íslensk verk í þróun fyrir...

Sjá meira

Ávarp á alþjóðlega Barnaleikhúsdeginum

20. mars 2007. Það verður aldrei lögð of mikil áhersla á það hversu mikilvægt gott leikhús er fyrir börn. Börn eiga ekki auðvelt með að segja okkur hvers vegna þau eru reið, hrædd eða fyrir hvað þau skammast sín og við eigum stundum erfitt með að giska á það. Vandaðar leiksýningar og góðar sögur eru þeirra sálgæsla. Góð saga sem hefur slípast í meðförum kynslóð eftir kynslóð og býður þeim afgerandi lausn þar sem allt fer vel að lokum og hið góða sigrar hið illa – hún getur hjálpað þeim að greiða úr sterkum tilfinningum. Það sama gildir um vel unna og úthugsaða barnaleiksýningu. Það virðist vera í tísku að slá um sig með fullyrðingum um að leikhúsið sé dautt. Sorglegt ef satt væri, því kannski hefur aldrei verið meiri þörf fyrir leikhús en einmitt núna. Bæði fyrir börn og fullorðna. Og þó einkum fyrir börn. Og helst fyrir fullorðna með börnum – núna þegar hraðinn er svo mikill að börnin gleymast – jafnvel á sunnudögum. Þegar fæstir kunna lengur – eða gefa sér tíma til – að segja börnum sögur á kvöldin. Bilið milli barna og fullorðinna virðist stöðugt halda áfram að breikka. Við fullorðna fólkið erum smám saman að hverfa brott úr umhverfi barnanna. Kynslóðirnar eru hólfaðar eftir aldri og börn eru í æ ríkara mæli meðhöndluð sem hópur – í leikskólanum, í skólanum og jafnvel í...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert