Author: lensherra

Sögustund í Kópavogi

Það er alltaf skemmtileg tilfinning að fara í leikhús og hafa ekki hugmynd um hvað bíður manns. Þó að vissulega geti brugðið til beggja vona þá er bara eitthvað svo heillandi við óvissuna, maður er einhvern veginn frjáls undan öllum fyrirfram væntingum og öll skilningarvit fara á fullt að meðtaka minnstu vísbendingar um hvað í vændum er. En það er líka vandinn við að fjalla um svona sýningar að maður vill helst ekki eyðileggja ánægjuna fyrir væntanlegum sýningargestum með því að segja of mikið frá því sem framundan er, sérstaklega ef upplifunin hefur verið ánægjuleg. Hjá þessu verður þó...

Sjá meira

Leiklistardagar hjá Leikfélagi Siglufjarðar

Alþjóðasamtök leiklistarfólks, ITI, sem er ein af undirstofnunum UNESCO hafa frá 1962 haft 27. mars ár hvert sem Alþjóðlegan leiklistardag. Leiklistarsamband Íslands, sem er Íslandsdeild ITI, hefur frá stofnun sinni haldið upp á þennan dag og fengið hverju sinni málsmetandi listamann úr sínum röðum til að semja ávarp í tilefni dagsins. Að þessu sinni er það brúðuleikhúslistamaðurinn Bernd Ogrodnik, sem hefur búið og starfað á Íslandi síðustu ár og auðgað íslenskt leikhúslíf eftirminnilega. Leikfélag Siglufjarðar tekur virkan þátt í því að opna dyr leikhússins í tilefni dagsins. Við byrjum á því að heimsækja Grunnskólann á Siglufirði þar ætlum við...

Sjá meira

Martröð hjá Leikfélagi Kópavogs

Leikfélag Kópavogs á fimmtugsafmæli í ár og því er nóg um að vera á þeim bænum í vor. Félagið sýnir nú annað verk sitt á þessu ári. Unglingadeild Leikfélags Kópavogs frumsýndi í gærkvöldi, fimmtudag 22. mars, leikverkið Martröð. Verkið er byggt á Draumi á Jónsmessunótt eftir William Shakespeare. Martröð er að miklu leyti unnin og sýnd í spuna. Leikstjórn er í höndum Sigurþórs Alberts Heimissonar. Hægt er að panta miða í síma 823 9700 eða á miðasala@kopleik.is Næstu sýningar eru: Laugardag 24. mars Miðvikudag 28. mars Fimmtudag 29. mars Einnig eru síðustu sýningar á verkinu Allt og ekkert í...

Sjá meira

Frumsýning á Hofsósi

Leikfélag Hofsóss frumsýnir í kvöld 23. mars, gamanleikinn Ef væri ég gullfiskur! eftir Árna Ibsen í leikstjórn Þrastar Guðbjartssonar. Óhætt er að segja að Þröstur sé orðinn hagvanur í Skagafirðinum en hann hefur leikstýrt mörgum verkum hjá Leikfélagi Sauðárkróks en að þessu sinni tókst Hofsósingum þó að krækja í hann. Hlutverk í leikritinu eru 10 talsins en auk þess kemur fjöldi aðstoðarfólks að sýningunni. Sýnt er í Félagsheimilinu Höfðaborg og eru alls áætlaðar 8 sýningar: Frumsýning föstudag 23. mars kl. 21:00 2. sýning laugardag 24. mars kl. 21:00 3. sýning þriðjudag 27. mars kl. 21:00 4. sýning miðvikudag 28....

Sjá meira

Léttleiki í Lyngbrekku

Gísli Einarsson skrifar: Góðir farsar eru alltaf kærkomin glæta í skammdeginu. Nóg er af hörmungum og leiðindum í heiminum sem oftar en ekki rata síðan á leiksvið og þykir reyndar fínt. Ég er hinsvegar þeirrar skoðunar að leikverk eigi fullan rétt á sér og vel það þó þau skilji ekkert annað eftir sig en óminn af hlátursrokunum. Ég hef nefnilega aldrei skilið til fullnustu þá kröfu að list þurfi að vera leiðinleg. Leikdeild Umf. Skallagríms sýnir: Sex í sveit. Leikstjóri: Rúnar Guðbrandsson. Leikendur: Ragnar Gunnarsson, Jónas Þorkelsson, Inga Hólmfríður Gunnarsdóttir, Þórdís Jónmundsdóttir, Þröstur Reynisson og Margrét Pétursdóttir. Sex í...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert