Author: lensherra

Gísli Súrsson til Albaníu

Kómedíuleikhúsinu á Ísafirði hefur verið boðið á einleikjahátíðina Albamono í Albaníu með leikinnn Gísli Súrsson. Um er að ræða alþjóðlega leiklistarhátíð sem fer fram dagana 21. – 25. maí næstkomandi. Albamono er haldin í Korce í Albaníu og er þetta í annað sinn sem hátíðin er haldin og verður Gísli Súrsson sýndur á íslensku. Þetta er í þriðja sinn sem Kómedíuleikhúsið sýnir Gísla Súrsson erlendis. Haustið 2006 var leikurinn sýndur á leiklistarhátíðinni Integra í Hannover þar sem Gísli vann til verðlauna. Fyrir skömmu var Gísli síðan á ferðinni í Lúxembúrg þar sem hann var bæði leikinn á ensku og...

Sjá meira

Vinnusmiðja um þáttökuleikhús

Næstkomandi þriðjudag, 15. maí verður síðasta vinnusmiðja fræðsludeildar Þjóðleikhússins og FLÍSS – Félags um leiklist í skólastarfi í vetur. Að þessu sinni kynnumst við aðferðum þátttökuleikhúss (Forum theatre). Þessar aðferðir hafa lengi verið vinsælar meðal leiklistarkennara, enda bjóða þær upp á frábæra leið til þess að takast á við erfið viðfangsefni með nemendum auk þess að vera gott þjálfunartæki í leiklist. Leiðbeinandi í vinnusmiðjunni verður Susanne Braad Andersen sem vinnur í Aalborg kommunale skolevæsen. Susanne hefur verið með leiksmiðjur víðs vegar um Norðurlönd og er í hópi leiðandi leiklistarkennara í heimalandi sínu. Á þriðjudagskvöldið mun hún taka fyrir verkefni um...

Sjá meira

Gyðjan í vélinni

Í vor mun Vatnadansmeyjafélagið Hrafnhildur leiða sýningu um borð í elsta skipi Landhelgisgæslunnar. Varðskipið Óðinn fær þá nýtt yfirbragð, þar sem ímyndunaraflið fær að flæða um króka og kima. Skipið er míkrókosmos. Sér heimur. Áhorfendur ferðast utan frá og inn; ofan frá og niður. Með því að stíga um borð er komið inn í nýjan heim í tíma og rúmi. Í sýningunni er brugðið upp táknmyndum af konunni gegnum árþúsundir, saga hennar og samhengi viðrað á nýstárlegan hátt. Saumuð verða hjartasár, keppir fylltir, málshættir bróderaðir. Hugurinn baðaður í jellýi, hunangi, royal-búðingi og majónesi. Uppákomur í bland við innsetningar, tónlist...

Sjá meira

Leikfélag Fljótsdalshéraðs í Þjóðleikhúsinu 7. júní

Sýning Leikfélags Fljótsdalshéraðs, Listin að lifa, eftir Sigríði Láru Sigurjónsdóttur í leikstjórn Odds Bjarna Þorkelssonar var valin athyglisverðasta áhugasýning leikársins sem brátt er á enda. Samkvæmt venju er aðstandendum boðið að sýna verkið í Þjóðleikhúsinu og verður sýnt í Kúlunni 7. júní næstkomandi kl. 20.00. Gert er ráð fyrir aukasýningu þann 8. ef það verður uppselt. Miðapantanir eru hafnar hér. Verkið var skrifað fyrir félagið og sett upp í tilefni að 40 ára afmæli þess, sem var í ágúst síðastlðnum. Það var frumsýnt í nóvember, en sýnt var í félagsheimilinu á Iðavöllum. Í umsögn dómnefndar um sýninguna segir meðal...

Sjá meira

Leiklistarnámskeið fyrir ungt fólk

Bandalag norskra leikfélag heldur nú í þriðja sinn sumarskóla í leiklist fyrir ungt fólk á aldrinum 16 til 25 ára. Skólinn er á vegum ungliðasamtaka norrænu leikfélagana, NUTU. Í þetta sinn verður hann haldinn í Ringerike lýðháskólanum í Hønefoss. Skólinn er staðsettur í göngufæri við miðbæjar smábæjarins Hønefoss sem er í um klukkustundar akstursfjarlægð frá Osló. Skólinn verður haldinn 7. til 21. júlí. Námsdvölin kostar 2.000 kr.norskar á nemanda en það gera um 20.000 krónur íslenskar. Hvert norðurlandanna á 10 pláss á skólanum. Skráningar fyrir íslenska nemendur eru á skrifstofu Bandalags íslenskra leikfélaga. Þeir sem vilja skrá sig þurfa...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert