Author: lensherra

Einn koss enn í Þjórsárveri

Leikfélag Ölfuss sýnir Einn koss enn og ég segi ekki orð við Jónatan eftir Marc Camoletti í leikgerð Sigurðar Atlasonar, í Þjórsárveri, næstkomandi sunnudag, þann 29. apríl. Sýningin hefst klukkan 16. Miðapantanir í síma 664-6454. Miðar verða einnig seldir við innganginn klukkustund fyrir sýningu. Leikritið fjallar um kvennamanninn Jónatan sem heldur við þrjár flugfreyjur sem vinna eftir föstum áætlunum sem ekki skarast. Þegar nýjar hljóðfráar þotur eru teknar í notkun fer skipulagið í vaskinn og leikurinn að æsast. Leikstjóri verksins er Hörður Sigurðarson. Sex leikarar eru í sýningunni. Þeir eru Arnar Gísli Sæmundsson, Ásta Margrét Grétarsdóttir, Helena Helgadóttir, Hulda...

Sjá meira

Leikritasamkeppni Peðsins

Leikfélagið Peðið efnir til leikritasamkeppni í tengslum við Menningarhátíð Grand Rokks sem haldin verður dagana 31. maí–3. júní 2007. Leitað er eftir drögum/hugmyndum/grind að leikverki sem hentað gæti til uppsetningar hjá leikhópnum. Skilafrestur er til 15. maí og skal handritum skilað á Grand Rokk, Smiðjustíg 6, 101 Reykjavík, í umslagi merktu Leikritasamkeppni Peðsins og nafn höfundar ásamt símanúmeri viðlagt í lokuðu umslagi, merktu verkinu. Dómnefnd skipuð Viðari Eggertssyni, Þorgeiri Tryggvasyni og Lísu Pálsdóttur mun velja vinningshandritið og stefnt er að því að verkið verði sett upp á Menningarhátíðinni að ári. Mundið nú pennann eða tætið upp úr skúffunum! Vegleg...

Sjá meira

Krónikur dags og nætur

Leikrænn flutningur á textum eftir Xavier Durringer verður á 3. hæðinni í Borgarleikhúsinu þann 27. apríl, kl. 21:00. Sýningin Krónikur dags og nætur er byggð á bók Durringer “Les chroniques des jours entiers et des nuits entières” sem inniheldur fjölmarga stutta prósatexta og samtöl. Verkefni leikstjóra og þýðenda var að finna 26 texta héðan og þaðan úr bókinni og mynda þannig eina heild sem sýnir glöggt viðfangsefni höfundar; firringu, ofbeldi og tilgang eða tilgangsleysi í mannlegum samskiptum sem og um lífið, ástina sem við dreymum um, og dauðann að lokum. Tilgangur verksins er um leið að fólk til að...

Sjá meira

Stuttverk og leiklestrar hjá Hugleik

Leikfélagið Hugleikur gerir ekki endasleppt í vetur. Sýningum er nýlokið á "Eplum og eikum" eftir Þórunni Guðmundsdóttur, sýningar standa yfir á "Bingó" eftir Hrefnu Friðriksdóttur í samstarfi við Leikfélag Kópavogs, og nú sýnir félagið fjóra nýja einþáttunga í Þjóðleikhúskjallaranum. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Hugleikur sýnir í kjallaranum, félagið hefur verið með reglulegar dagskrár þar síðustu tvö árin undir yfirskriftinni "Þetta mánaðarlega". Þættirnir sem sýndir verða að þessu sinni eru: Fyrir eftir Hrefnu Friðriksdóttur í leikstjórn Kristínar Nönnu Vilhelmsdóttur Eigin raun eftir Sigurð H. Pálsson í leikstjórn Þórunnar Guðmundsdóttur Þriðjudagskvöld eftir Þórunni Guðmundsdóttur í leikstjórn Rúnars Lund...

Sjá meira

Ég vil hvergi annarsstaðar vera

Hvað er bingó? Mikið meira en ég hélt að það væri svo mikið er víst. Það eru allir þessir gluggar sem má opna og loka og allar þessar tölur og svo bókstafirnir. Þetta er grunnurinn sem höfundurinn Hrefna Friðriksdóttir, notar í verkinu Bingó, sem sýnt er um þessar mundir í Hjáleigunni í Kópavogi. Leikstjóri er Ágústa Skúladóttir. Bingó er samstarfsverkefni Hugleiks og Leikfélags Kópavogs, en félögin unnu saman að sýningunni Memento mori sem sló í gegn, en þar var einnig um samstarf Hrefnu og Ágústu að ræða. Hér koma þær aftur saman og má segja að aftur takist þeim...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert