Nýr leikari í Skilaboðaskjóðunni
Leikurum í ævintýrasöngleiknum Skilaboðaskjóðunni hefur bæst liðsauki en hæfileikapilturinn Árni Beinteinn Árnason mun framvegis leika hlutverk Putta litla á móti öðrum ungum leikara, Hrafni Bogdan Haraldssyni, sem hefur staðið sig frábærlega í sýningum vetrarins. Söngleikurinn Skilaboðaskjóðan eftir Þorvald Þorsteinsson og Jóhann G. Jóhannsson var frumsýndur í leikstjórn Gunnars Helgasonar í byrjun nóvember og hefur slegið í gegn hjá áhorfendum á öllum aldri. Vegna glimrandi aðsóknar var bætt við nokkrum aukasýningum og því hefur verið töluvert álag á leikarana. Það er því fengur að komu Árna Beinteins í hópinn. Árni Beinteinn hefur mikla sviðsreynslu þrátt fyrir ungan aldur. Hann lék...
Sjá meira


