Leitin að jólunum í Þjóðleikhúsinu
Uppselt er á aðventuleikritið Leitina að jólunum í Þjóðleikhúsinu en sýningar þess eru að verða fastur liður í jólaundirbúningi margra. Þetta er í þriðja sinn sem verkið er sett upp í Þjóðleikhúsinu en það hefur notið mikilla vinsælda og hlaut meðal annars Grímuverðlaunin sem barnasýning ársins 2006. Sýningar á Leitinni að jólunum tóku við af sýningum á barnaleikritinu Gott kvöld í Kúlunni en sýningar þær hefjast að nýju milli jóla og nýárs og verða áfram um helgar eftir áramót. Sérstakar jólasýningar verða á leikritinu Gott kvöld þann 30. desember nk. Yngstu áhorfendurnir geta því fundið eitthvað fjörugt og skemmtilegt...
Sjá meira


