Þegar Trölli stal jólunum
Sunnudaginn 9. desember klukkan 14:00 frumsýnir Leikfélag Mosfellssveitar í Bæjarleikhúsinu leikritið Þegar Trölli stal jólunum. Það er unglingahópur leikfélagsins, krakkar á aldrinum 13-16 ára, sem stendur að uppsetningunni, en leikstjórar eru Sigrún Harðardóttir og Agnes Þorkelsdóttir Wild. Höfundur verksins er Dr. Seuss og er leikgerð unnin upp úr íslenskri þýðingu Þorsteins Valdimarssonar á bókinni og bíómynd af Agnesi Þorkelsdóttur Wild. Alls koma þrjátíu manns að sýningunni. Þetta er leiksýning sem börn og fullorðnir ættu ekki að láta fram hjá sér fara. Miðaverð aðeins krónur 1000,- Sýningar verða á eftirfarandi tímum í Bæjarleikhúsinu í Mosfellsbæ: Frumsýning 09.12.07 sunnudagur kl.14:00...
Sjá meira


