Author: lensherra

Annáll Kómedíuleikhússins 2007

Það er gamall og góður íslenskur siður að líta um öxl við áramót og kikka á hvað maður hafi nú verið að brasa á árinu sem er að líða. Árið 2007 hefur sannarlega verið mjög fjörugt og Kómískt hjá Kómedíuleikhúsinu. Meðal verkefna ársins eru 4 nýjar leiksýningar, Act alone leiklistarhátíðin var haldin í fjórða sinn, tvær hljóðbækur voru gefnar út og Sparikallinn varð til svo eitthvað sé nefnt. Kómedíuleikarinn sérlegur ritari, leikari, leikhússtjóri og ræstitæknir Kómedíu rekur hér annál Kómedíuleikhússins árið 2007. Eða einsog við segjum á Kómísku máli: Annó Kómedí 2007. Gjörið svo vel.   Árið hófst með...

Sjá meira

Leikfélag Hveragerðis frumsýnir Aladdin

Þann 12. janúar n.k. Leikfélag Hveragerðis frumsýnir barnaleikritið Aladdin. Leikgerð og leikstjórn er í höndum Hafsteins Þórs Auðunssonar en hann er jafnframt í stjórn leikfélagsins. Æfingar hófust í byrjun september og fóru rólega af stað. Það hefur gengið mikið á í leikfélaginu við hönnun leikmyndar enda var öllu snúið við til að koma sýningunni fyrir í Völundi. Mikið er lagt upp úr búningum og sér Anna Jórunn Stefánsdóttir um hönnun þeirra. 20 krakkar á aldrinum 11-15 ára taka þátt í sýningunni og setja mikinn svip á hópatriðin í verkinu. Í helstu hlutverkum eru Hafsteinn Þór Auðunsson sem Andinn, Snorri...

Sjá meira

Hugleikur boðar til samlesturs

Þá líður að því að vinnan við seinni stóru uppfærslu Hugleiks á leikárinu, 39½ viku eftir Hrefnu Friðriksdóttur, fari af stað. Leikstjórn verður í höndum Ástu Gísladóttur, Júlíu Hannam og Sigurðar H. Pálssonar. Opnir samlestrar verða í húsnæði félagsins að Eyjarslóð 9 fimmtudagskvöldið 10/1 kl. 20 og laugardaginn 12/1 kl. 15. Allir sem hafa áhuga á að koma nálægt sýningunni, hvort sem er sem leikarar, tæknimenn, tónlistarmenn eða annað, eru eindregið hvattir til að láta sjá sig að minnsta kosti á öðrum samlestrinum, helst báðum. Þeir sem eiga þessi ekki nokkurn kost að mæta, en hafa samt hug á...

Sjá meira

Leikfélag Selfoss sýnir Með táning í tölvunni

Föstudaginn 11. janúar frumsýnir Leikfélag Selfoss gamanleikritið Með táning í tölvunni eftir Ray Cooney. Leikstjóri er Jón Stefán Kristjánsson sem einnig þýddi verkið. Þetta er bráðskemmtilegur og hress farsi sem mun kitla hláturtaugarnar svo um munar, sjálfstætt framhald af Með vífið í lúkunum sem leikfélagið setti upp árið 1999 en það er sú sýningin sem besta aðsókn hefur fengið í litla leikhúsinu við Sigtún. Með vífið í lúkunum fjallaði um hvernig leigubílstjóranum John Smith tókst að lifa tvöföldu lífi með tveimur eiginkonum. Með táning í tölvunni gerist 18 árum síðar þegar dóttir hans úr öðru hjónabandinu og sonur hans...

Sjá meira

Fool 4 love í Austurbæ

Leikhópurinn Silfurtunglið frumsýndi fyrir skemmstu leikritið Fool 4 love eftir bandaríska leikskáldið Sam Shepard í leikstjórn Jóns Gunnars Þórðarsonar. Tónlistina í verkinu samdi og flytur KK. Fool 4 love er sýnt í Austurbæ Fool 4 Love eftir Sam Shepard trónir að margra mati á toppnum sem besta nútímaleikrit Bandaríkjamanna. Verkið er ástríðufullt og einkennist af hraða, spennu og beittum húmor. Fyrrum elskendur hittast á yfirgefnu vegamóteli í útjaðri Mojave eyðimerkurinnar. May er á flótta undan Eddie en þrátt fyrir erfiðleika og ofbeldisfull samskiptin er ástin ekki langt undan. Eldri maður situr á veröndinni og talar við áhorfendur en nærvera...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert