Author: lensherra

Leikfélag Sauðárkróks finnur milljón

Í byrjun mars hóf Leikfélag Sauðárkróks æfingar á gamanleikritinu Viltu finna milljón? eftir Ray Cooney en Gísli Rúnar Jónsson sá um íslenskun og gerði nýja leikgerð verksins. Leikstjóri er Jón Stefán Kristjánsson. Þessi hressilegi stofufarsi fjallar um barnakennarann Ingibjörgu, skrifstofublókina Harald og 400 milljónir króna sem þeim skötuhjúum áskotnast allskyndilega. Þau ákveða þarna á staðnum að láta peningana renna óskipta til áhugaleikfélaga um allt land – æ nei það var víst bara í draumaútgáfu LS. Þau Ingibjörg og Haraldur eru hinsvegar ekki sammála um hvað gera eigi við seðlana og í miðju rifrildinu koma gestir, og svo koma meiri gestir...

Sjá meira

Engisprettur frumsýndar 27. mars

Þjóðleikhúsið frumsýnir leikritið Engisprettur eftir serbneska leikskáldið Biljana Srbljanović á Stóra sviðinu þann 27. mars nk. í leikstjórn Þórhildar Þorleifsdóttur. Þetta ljúfsára verk fjallar á manneskjulegan og heillandi hátt um samskipti fólks, baráttu ólíkra kynslóða og samskipti í fjölskyldum, togstreituna milli foreldra og barna, systkina og hjóna. Við kynnumst hópi persóna og fylgjumst með því hvernig örlög þeirra eru samofin á sérstæðan hátt. Kolsvartur húmor Srbljanović, angurværð og mannleg hlýja renna saman á einstakan máta í þessu margslungna verki.   Biljana Srbljanović er álitin eitt athyglisverðasta unga leikskáld Evrópu í dag. Hún sló í gegn með fyrsta leikriti sínu...

Sjá meira

Leikfélag Hörgdæla og Passíusálmarnir

Passíusálmar Hallgríms Péturssonar verða lesnir á Föstudaginn langa í Möðruvallakirkju í Hörgárdal og hefst lesturinn kl. 13:00 og gert er ráð fyrir að honum ljúki um kl. 18:00. Þetta er í áttunda skiptið sem Möðruvallaklaustursprestakall og Leikfélag Hörgdæla standa fyrir þessum upplestri og er fólk hvatt til að mæta og eiga samverustund í...

Sjá meira

Jörundur í Logalandi

Við erum stödd í Logalandi í Reykholtsdal. Hinu gamla en margstækkaða félagsheimili hefur verið umturnað og því breytt í sögusvið kráarinnar Jokers & Kings í London þar sem saga Jónasar Árnasonar af Jörundi hundadagakonungi var sögð á frumsýningu síðastliðið föstudagskvöld. Þannig hefst gagnrýni Magnúsar Magnússonar á leiksýninguna Þið munið hann Jörund sem Umf. Reykdæla sýnir um þessar mundir á 100 ára afmæli félagsins. Pistillinn er birtur með góðfúslegu leyfi höfundar. Fjörleg sýning unnin úr góðum efniviði Við erum stödd í Logalandi í Reykholtsdal. Hinu gamla en margstækkaða félagsheimili hefur verið umturnað og því breytt í sögusvið kráarinnar Jokers &...

Sjá meira

Bjarni Jónsson tilnefndur

Leiklistarsamband Íslands tilnefndi í dag Bjarna Jónsson til Norrænu leikskáldaverðlaunanna fyrir leikritið Óhapp! sem frumflutt var síðasta haust á Smíðaverkstæði Þjóðleikhússins í leikstjórn Stefáns Jónssonar. Uppsetningin hlaut afar góð viðbrögð áhorfenda jafnt sem gagnrýnenda, sem lofuðu verkið og sýninguna. Leiklistarvefurinn upplýsir með stolti að Bjarni er einn af kennurum Leiklistarskóla Bandalagsins í júní nk. og sendir honum innilegar hamingjuóskir! Norrænu leikskáldaverðlaunin eru veitt á Norrænum leiklistardögum sem haldnir eru annað hvert ár, að þessu sinni í Tampere í Finnlandi 4. – 10. ágúst nk.   Dómnefndina skipuðu Sveinbjörn I. Baldvinsson rithöfundur og formaður nefndarinnar, Hallmar Sigurðsson leikstjóri og Silja...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert