Bærinn breiðir úr sér í Keflavík
Föstudaginn 7. mars frumsýndi Leikfélaga Keflavíkur revíuna Bærinn breiðir úr sér eftir Breiðbandið, en það skipa þeir Magnús Sigurðsson, Rúnar Hannah og Ómar Ólafsson. Leikstjóri er Helga Braga Jónsdóttir, danshöfundur er Josy Zareen og tónlistarstjóri er Júlíus Freyr Guðmundsson. Revían fjallar um lífið í Reykjanesbæ og m.a tekið fyrir það gullgrafaraæði sem ríkti og ríkir enn á gamla varnarsvæðinu. Leikarar í sýningunni eru 18 en alls koma ríflega 30 manns að henni á einn eða annan hátt. Sýnt er í Frumleikhúsinu í Keflavík en sl. haust voru 10 ár frá því það var tekið í notkun. Revían er...
Sjá meira


