Aðalfundur og einþátttungahátíð í Skagafirði
Dagana 1. 4. maí verður aðalfundur Bandalags íslenskra leikfélaga haldinn í félagsheimilinu Árgarði í Skagafirði og í tengslum við hann verður haldin einþáttungahátíð. Hún hefst að kvöldi fimmtudagsins 1. maí og stendur fram eftir föstudegi. Sjálfur aðalfundurinn hefst svo að morgni laugardagsins 3. maí og stendur fram að hádegi á sunnudeginum. Aðildarfélög Bandalagsins eru hér með eindregið hvött til að senda fulltrúa sína á Bandalagsþing og verk á einþáttungahátíðina. Frestur til að tilkynna þáttöku á hvort tveggja rennur út 18. apríl. Það er Leikfélag Sauðárkróks sem hefur veg og vanda að aðalfundi þetta árið. Einþáttungahátíðin verður eins og áður...
Sjá meira


