Barnið frumsýnt í Hafnarfirði
Leikfélag Hafnarfjarðar frumsýnir laugardaginn 12. apríl leikverkið Barnið eftir Edward Albee. Verkið er skrifað í anda absúrd verka fimmta áratugarins, verka Ionesco og Beckett en þó með sterkri tilvísun til stöðu mannsins í nútímanum. Verkið fjallar um stúlkuna og strákinn sem eignast barn og njóta lífsins í fullkomnu sakleysi og án truflana frá hinum ytri heimi. Þegar maðurinn og konan koma inn í líf þeirra breytist allt og spurningarnar um kvölina og völina verða áleitnar. Í verkinu takast á launfyndnar uppákomur og grátleg atvik. Og hvað varð um barnið? Verkið er þýtt af Guðrúnu Sóleyju Sigurðardóttur og er í...
Sjá meira


