Author: lensherra

Così fan tutte í Íslensku óperunni

Hvað gerist þegar saman koma 25 söngnemendur, 30 nemendur í hljóðfæraleik, Mozart og hópur atvinnufólks úr íslensku tónlistar- og leikhúslífi? Svar: Così fan tutte í Íslensku óperunni – ævintýraleg, uppátækjasöm og stórskemmtileg uppfærsla Óperustúdíós Íslensku óperunnar, í leikstjórn Ágústu Skúladóttur, á einu af meistaraverkum óperubókmenntanna, þar sem hlutirnir eru langt frá því að vera það sem þeir sýnast. Frumsýning er sunnudaginn 6. apríl kl. 20. Così fan tutte eftir W.A. Mozart verður tekin fyrir að þessu sinni í Óperustúdíói Íslensku óperunnar, sem er vettvangur innan Íslensku óperunnar þar sem langt komnir og hæfileikaríkir tónlistarnemendur fá tækifæri til að spreyta...

Sjá meira

Leikhópurinn Perlan fagnar 25 ára afmæli

Í tilefni af 25 ára afmæli Perlunnar, frumsýnir leikhópurinn tvö verk sunnudaginn 6. apríl næstkomandi kl. 14.00. Annars vegar er það leikverkið Mídas konungur er með asnaeyru, og hins vegar Ljón og Mýs, en Sigríður hefur sjálf unnið leikgerðir beggja verka auk þess sem hún leikstýrir. Dansverkið Body-Slap eftir Láru Stefánsdóttur, sem höfundur leikstýrir jafnframt, verður einnig á dagskrá  auk þess sem sýnd verða myndbönd Perlunnar, þar á meðal myndbandið Svefn-genglar sem er tónlistamyndband sem Perlan gerði með hljómsveitinni Sigurrós. Í heilan aldarfjórðung hefur Sigríður Eyþórsdóttir haft umsjón með starfsemi leikhópsins Perlunnar. Á þeim tíma hefur hún, og þeir listamenn sem sýnt hafa undir hennar stjórn, auðgað listalíf landsins svo um munar. Perlan hefur sýnt víða, meðal annas hjá félögum og  félagasamtökum, í sjónvarpi, á listahátíðum, styrktarskemmtunum bæði hér heima sem og víða um heim og óhætt er að fullyrða að á þeim tíma hafi hópurinn öðlast heimikla viðurkenningu. Leikhópurinn Perlan hefur vakið verðskuldaða ayghygli fyrir einlæga og fagra leiktúlkun sína og booðskapur þeirra verka sem sýnd eru hafa einatt verið kærleikur, skilningur og virðing. Það var mikið framfaraskref í jafnréttisátt fyrir fatlaða listamenn þegar leikhópurinn fékk fasta aðstöðu í Borgarleikhúsinu enda er tjáning öllum í blóð borin og leikarar í Perlunni að sjálfsögðu engin undantekning þar á. Perlunni bættist við góður liðsauki þegar Lára Stefánsdóttir fór að semja fyrir þau dansa og stjórna. Þar með var Perlan orðin...

Sjá meira

Gítarleikararnir í Borgarleikhúsinu

Laugardaginn 5. apríl næstkomandi verður leikverkið Gítarleikararnir eftir Line Knutzon, í leikstjórn Hilmis Snæs Guðnasonar, frumsýnt á Litla sviðinu í Borgarleikhúsinu. Verkið, sem mætti kalla hlýlegan gamanleik með lifandi tónlist, fjallar um fjórar manneskjur sem koma saman til að votta nýlátnum trúbador virðingu sína. Line Knutzon hefur einstakt lag á að gæða hversdagslegar samræður persóna sinna fínlegri kímni, en varpa um leið fram tilvistarlegum spurningum með einfaldleika sínum. Knutzon hefur verið nefnd eitt athyglisverðasta leikskáld Dana um þessar mundir. Skemmst er að minnast uppsetningu LR á verki hennar Fyrst er að fæðast fyrir nokkrum árum. Trúbadorinn John Hansen er...

Sjá meira

Hver er sá ljóti?

Þjóðleikhúsið frumsýnir leikritið Sá ljóti eftir þýska leikskáldið Marius von Mayenburg á Smíðaverkstæðinu þann 5. apríl nk. í leikstjórn Kristínar Eysteinsdóttur. Sá ljóti er nýjasta verk Þjóðverjans Mariusar von Mayenburg sem hefur vakið mikla athygli í evrópsku leikhúslífi á undanförnum árum. Verkið er jafnframt fyrsta verk hans sem sviðsett er á Íslandi, en Ríkisútvarpið hefur áður flutt leikrit eftir hann.   Við kynnumst Lárusi. Hann er ljótur. Svo ljótur að honum er meinað að fara á ráðstefnu á vegum fyrirtækisins. Sú ákvörðun kemur Lárusi algerlega í opna skjöldu og þegar vinnufélagar hans og eiginkona segjast skilja afstöðu fyrirtækisins fullkomlega...

Sjá meira

Áheyrnarpróf Rose Bruford College í Hinu húsinu

Dagana 5.-6. apríl fara fram áheyrnarpróf fyrir breska leiklistarskólann Rose Bruford College í Hinu húsinu Pósthússtræti 3-5, fyrir inngöngu í skólann í september 2008. Skólinn býður uppá afar fjölbreytt BA nám í leiklist, t.d. í leik, leikstjórn, allri hönnun fyrir leikhús, leikhúsfræði, leikhústónlist o.m.fl. Skólinn er staðsettur  í London. Nánari upplýsingar og bókun á viðtalstímum eru í síma 0044 208 308 2612 eða í tölvupósti á sue.widdows@bruford.ac.uk...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert