Author: lensherra

Hverjir eru höfundar leikhússins?

Mánudaginn 21. apríl kl. 20 munu Leiklistarsamband Íslands og Leiklistardeild Listaháskóla Íslands standa fyrir fyrirlestri um stöðu höfundar í nútímaleikhúsi á Kaffi Sólon, Bankastræti 7a, 2. hæð. Fyrirlesarar eru Charlotte Böving, leiklistarkona og Jón Atli Jónasson, leikskáld. Höfundurinn er flókið fyrirbæri þegar kemur að leikhúsi. Leikskáldið sat lengi vel eitt að þeim heiðri að teljast höfundur sviðsins og í enn dag kynna leikhúsin verkefni undir heiti leikskáldsins. Á tuttugustu öld óx hins vegar leikstjóranum fiskur um hrygg og gerði harða atlögu að veldissprota leikskáldsins. Á undanförnum áratugum hafa síðan margir leikhúslistamenn og -hópar farið þá leið að útiloka leikskáldið...

Sjá meira

Rocky Horror á Hornafirði

Leikfélag Hornafjarðar í samvinnu við FAS sýnir nú Söngleikinn Rocky Horror í leikstjórn Jóns Inga Hákonarsonar. Frumsýnt var þann 10. apríl og fara sýningar fram í Mánagarði. Kór- og tónlistarstjóri er Anna Lilja Karlsdóttir. Þessi frægi söngleikur Richards O'Briens nýtur gífurlegra vinsælda hér á landi og er í uppsetningunni lögð áhersla kraftmikinn og líflegan flutning. Með aðalhlutverk fara Emil Örn Moravek sem Frank'N'Furter, Þórður Ingvarsson sem Riff Raff, Nanna Halldóra Imsland sem Janet, Elvar Bragi Kristjónsson sem Brad, Hafdís Hauksdóttir sem Magenta, Sólveig Morávek sem Columbia, Júlíus Sigfússon sem Eddie, Anna Lilja Karlsdóttir sem Dr. Scott, Steindór Sigurjónsson sem...

Sjá meira

Djöflaeyjan í Breiðumýri

Leikdeild ungmennafélagsins Eflingar í samstarfi við framhaldsskólann á Laugum frumsýndi þann 5. apríl sl. leikritið Þar sem djöflaeyjan rís í leikgerð Kjartans Ragnarssonar í gær. Sýnt í félagsheimilinu Breiðumýri sem er í nágrenni við Lauga í Reykjadal. Leikstjóri er Hörður Benónýsson og tónlistarstjóri Pétur Ingólfsson. Um ljósin sér Jón Arnkelsson og er Elín Kjartansdóttir búningahönnuður sýningarinnar. Verkið fjallar um lífið í braggahverfunum í Reykjavík á umrótartímum fyrstu áranna eftir seinna stríð og fjallar um gleði, átök og sorgir fjölskyldunnar í “Gamla húsinu” sem stendur eitt og sér innan um braggana. Eiga sumar persónur skáldsögunnar sér stoð í raunveruleikanum. Höfundur...

Sjá meira

Stúdentaleikhúsið sýnir Drottinn blessi blokkina

Þann 9. apríl sl. frumsýndi Stúdentaleikhúsið nýtt íslenskt verk sem ber heitið Drottinn blessi blokkina og er unnið í samvinnu leikhóps og leikstjóra. Sagan gerist, eins og titillinn gefur til kynna, í blokk og segir frá persónu sem skyndilega verður viðskila við förunaut sinn og uppgötvar sjálfstæðan vilja. Það er gluggað í íbúðir og líf litríkra íbúanna. Persónan mætir ýmsum manneskjum og aðstæðum og lærir margt misjafnt á leið sinni um torkennilegan heim. Leikstjórar eru Jóhanna Friðrika Sæmundsdóttir og Sveinn Ólafur Gunnarsson. Alls leika 12 manns í sýningunni, frumsamin tónlist er í henni í höndum Arnars Þórs Sigurjónssonar og...

Sjá meira

Mómó í Þorlákshöfn

Leikfélag Ölfuss frumsýndi fjölskylduleikritið Mómó eða skrítin saga um tímaþjófana og barnið sem frelsaði tímann úr klóm þeirra í leikstjórn Hrundar Ólafsdóttur laugardaginn 5. apríl. Leikritið er byggt á sögu þýska rithöfundarins Michael Ende, þess sama og skrifaði Söguna endalausu, og fjallar um litlu stúlkuna Mómó sem birtist dag einn í rústum gamals hringleikahúss og vingast við nágrannana sem þangað leggja leið sína.   Lífið er þó ekki eintóm hamingja því illkvittnar verur herja á vini Mómóar og ræna frá þeim öllum frítíma svo ekkert skiptir lengur máli annað en að vinna og græða. Mómó reynir að bjarga vinum...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert