Leikfélag Dalvíkur æfir jóladagskrá
Hjá Leikfélagi Dalvíkur standa nú yfir æfingar á léttri og skemmtilegri jóladagskrá sem áætlað er að frumsýna föstudaginn 7. nóvember næstkomandi kl. 20.30. Dagskrá þessi, er ber heitið Er nálgast jólin… inniheldur m.a. 3 frumsamin leikverk unnin af leikhópnum og leiðbeinendum, söng, dans, undirleik og fróðleik er tengist jólunum. Nemendur í 9. bekk Dalvíkurskóla túlka m.a. gömlu íslensku jólasveinana í kvæðagerð Jóhannesar úr Kötlum, nemendur í 4. bekk Dalvíkurskóla dansa fjörugt jólarokk, söngelskar meyjar og sveinar úr byggðalaginu taka lagið, hljómsveitin Ofnæmir leika og syngja 2 jólalög og fleira og fleira. Umsjónaraðilar og leikstjórar sýningarinnar eru þau Arnar Símonarson,...
Sjá meira


