Ljótasta leikferð allra tíma?
Leikarar Þjóðleikhússins leggja í dag upp í sína þriðju leikferð á vegum Farandleikhúss Þjóðleikhússins. Að þessu sinni ferðast leikhópur með sýninguna Sá ljóti til níu framhaldsskóla á landsbyggðinni og hefst ferðalagið á Akranesi. Þjóðleikhúsið hefur á undanförnum árum lagt sífellt meiri áherslu á leiksýningar sem höfða til ungs fólks, meðal annars í því skyni að efla leikhúsáhuga þessara leikhúsgesta framtíðarinnar. Liður í því markmiði að ná betur til ungs fólks var stofnun farandleikhúss sem ferðast milli framhaldsskóla landsins. Leikritið Sá ljóti var frumsýnt á Smíðaverkstæðinu á liðnu vori og hlaut frábærar viðtökur. Leikstjóri sýningarinnar Kristín Eysteinsdóttir var valin...
Sjá meira


