Author: lensherra

Styrkir úr leikritunarsjóðnum Progolus

Þriðja úthlutun úr Prologos, leikritunarsjóði við Þjóðleikhúsið, hefur nú farið fram.  Alls bárust 53 umsóknir frá 44 aðilum um styrk til að þróa leikhandrit og vinna að leiksmiðjuverkefnum.Ákveðið var að veita tvo styrki til þróunar leikhandrita og tvo styrki vegna leiksmiðjuverkefna. Að auki hlaut eitt leiksmiðjuverkefni framhaldsstyrk. Umsóknarfrestur vegna næstu úthlutunar er til 15. september nk. Allar nánari upplýsingar um Prologus leikritunarsjóðinn eru á heimasíðu Þjóðleikhússns www.leikhusid.is. Markmið Leikritunarsjóðsins Prologos er að hlúa að leikritun á Íslandi og efla höfundastarf við Þjóðleikhúsið. Sjóðnum er einnig ætlað að stuðla að framþróun og eflingu leiklistarinnar með leiksmiðju- og tilraunaverkefnum þar sem...

Sjá meira

Leiklistarskóli BÍL í Svarfaðardal

Skólinn var settur á laugardagsmorgun og stendur starfið nú sem hæst. Hægt er að fylgjast með dagbókarskrifum á spjallinu hér á Leiklistarvefnum. Svona byrjar skólastýra fyrstu færsluna: Leiklistarskólinn settur enn á ný – í 13. sinn þann 13. júní! Og sól skín hátt á himni í Svarfaðardal á 38 nemendur á þremur námskeiðum. Skólasetning fór vel fram – hér eru margir þrautreyndir nemendur sem kunna skólareglurnar utan að en góð vísa er nú aldrei of oft kveðin og busarnir þurfa sinn pistil. Skólabjöllunni hringt, fáninn dreginn að hún og Bandalagið sungið. Svo var unnið og unnið eins og alltaf...

Sjá meira

Ungan leikara vantar á Akureyri

Leikfélagi Akureyrar leitar að 12-15 ára strák sem hefur áhuga á því að taka að sér stórt og krefjandi hlutverk næsta vetur. Rétt er að taka fram að viðkomandi þarf ekki að syngja. Leikritið sem um ræðir verður frumsýnt um miðjan október og munu æfingar hefjast í ágúst. Tekið verður á móti áhugasömum í Samkomuhúsinu mánudaginn 15. júní milli klukkan 14 og...

Sjá meira

Leikhópurinn Lotta á Vesturlandi

Dagana 9. – 13. júní mun Leikhópurinn Lotta ferðast með sýninguna sína, Rauðhettu, um Vesturland. Ferðin hefst í Borgarnesi en þar er sýnt í Skallagrímsgarði, fimmtudaginn 11. júní klukkan 18:00. Um helgina verður farið á Snæfellsnesið, fyrst til Ólafsvíkur á föstudeginum en þar er sýnt í Sáinu klukkan 18:00 og á laugardeginum er sýnt annars vegar í Grundarfirði klukkan 11:00 og í Stykkishólmi í Kvennfélagsgarðinum klukkan 15:00. Frá Vesturlandi heldur hópurinn til Vestfjarða og þaðan norður í land. Sýnt er utandyra og er því um að gera að klæða sig eftir veðri og taka með sér teppi til að...

Sjá meira

Tvö plass laus í skólann vegna forfalla!

Tvö pláss á sérnámskeið fyrir leikara voru að losna vegna forfalla í Leiklistarskóla Bandalags íslenskra leikfélaga sem settur verður nk. laugardag. Kennari er Rúnar Guðbrandsson. Námskeiðið er ætlað þeim sem hafa reynslu í leikhúsi. Þeir ganga fyrir sem sótt hafa Leiklist I og II eða sambærileg námskeið eða hafa talsverða reynslu af sviðsleik.Námskeiðið snýst um tækni, þjálfun og sköpun leikarans og sækir m.a. innblástur í Leikhús grimmdarinnar (Antonin Artaud), Fátæka leikhúsið (Jerzy Grotowski) og Þriðja leikhúsið (Eugenio Barba).   Til að byrja með verður farið í atriði er lúta að leiktækni, – sjálfu handverki leikarans, því hversu skapandi sem...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert