Leiklistarnámskeið fyrir 10-15 ára
Leikfélag Hafnarfjarðar kynnir spennandi leiklistarnámskeið frá 3.-31. ágúst, annarsvegar fyrir börn á aldrinum 10-12 ára og hinsvegar fyrir aldurshópinn 13-15 ára. Aðaláherslur námskeiðsins eru að vinna sem heild, opna sig sem einstaklingur og læra að koma fram, auk þess að hafa gaman og njóta lífsins. Námskeiðinu lýkur með leiksýningu í fullri lengd á leiksviði. Ágúst:Æfingar yngri hópsins verða á hverjum virkum degi frá kl 09.00-12.00.Æfingar eldri hóps verða á hverjum virkum degi frá kl 11.00-14.00.Þegar skólarnir byrja í ágúst verður tímunum breytt í samráði við leihóp og forráðamenn.Leiðbeinendur og leikstjórar námskeiðanna eru Aldís Davíðsdóttir, leiklistarnemi, og Guðrún Sóley Sigurðardóttir,...
Sjá meira


