Við borgum ekki! Við borgum ekki! í Borgarleikhúsinu
Laugardaginn 6. júní frumsýnir Leikhópurinn Nýja Ísland farsann Við borgum ekki! Við borgum ekki! eftir Nóbelsskáldið Darío Fo á Nýja sviði Borgarleikhússins. Leikstjóri er Þröstur Leó Gunnarsson. Þetta er drepfyndinn og hárbeittur gamanleikur um það sem gerist þegar neyðin kennir nakinni konu að spinna lygavef. Úti er órói í almenningi enda hefur allt hækkað upp úr öllu valdi á sama tíma og verið er að skera niður og segja upp fólki. Konurnar taka málin og matinn í sínar hendur og meðan lögreglan leitar þeirra sem hafa fengið sér vörur með 100% afslætti, hefur frjósemi borgaranna aukist með dularfullum hætti...
Sjá meira


