Author: lensherra

Hárbeitt leikhús um íslenska þjóð

Föstudaginn 22. janúar kl. 20 verður frumsýnt á Nýja sviðinu nýtt íslensk leikverk Góðir Íslendingar eftir þá Hall Ingólfsson, Jón Pál Eyjólfsson og Jón Atla Jónasson. Verkið er hárbeitt ádeilda á íslenskt samfélag og hvernig við glímum við afleiðingar efnahagshrunsins sem á okkur dundi. Í Góðir Íslendingar er verið að skoða sjálfsmynd íslensku þjóðarinnar sem birtist m.a. í húsunum sem við byggðum og bílunum sem við keyptum en einnig í því hvernig við komum fram og tjáum okkur á veraldarvefnum og í lífinu yfirleitt. Við erum öll undir smásjánni í verkinu. Kreppan krefst nýrra leikmuna. Lopapeysur í stað jakkafata,...

Sjá meira

Emil í Kattholti er mættur í Hveragerði

Leikfélag Hveragerðis hefur hafist handa við uppsetningu á hinni geysivinsælu sögu um Emil í Kattholti eftir Astrid Lingren. Strákskrattann og fjörkálfinn Emil ættu flestir að þekkja enda mörg uppátækin sem hann hefur framið og hefur Týtuberja-Mæja verið iðin við að dreifa fregnum af fjölskyldunni í Kattholti til nærliggjandi bæja. Skrautleg saga sem gleður hjörtu allra. Þýðingu verskins gerði Vilborg Dagbjartsdóttir og leikstjóri er Sigurður Blöndal en hann leikstýrði meðal annars Kardimommubænum (2002) og Dýrunum í Hálsaskógi (2001) við góðan orðstír. Ákveðið hefur verið að halda teiknimyndasamkeppni fyrir leikskóla- og grunnskólabörn í Hveragerði og mun sigurvegari keppninnar fá vegleg verðlaun...

Sjá meira

Nemendaleikhús LHÍ frumsýnir Bráðum hata ég þig

Nemendaleikhús Listaháskóla Íslands frumsýnir nýtt íslenskt verk, Bráðum hata ég þig, eftir Sigtrygg Magnason þann 21. janúar n.k. í Smiðjunni, Sölvhólsgötu. Leikstjóri er Una Þorleifsdóttir. Bráðum hata ég þig er annað verkefni vetrarins en fyrsta sýning Nemendaleikhússins, Eftirlitsmaðurinn eftir Gogol, var sýnd fyrir fullu húsi í haust en uppselt var á allar sýningar. Á bæ við Kolugljúfur í Víðidal hittast fjórar systur við jarðarför móður sinnar, sem beðið hafði dauðans í hálfan annan áratug. Halla hefur ekki haft samband í þrjú ár, Snæfríður hefur ekki talað við neinn jafn lengi. Steinunn þráir að vera snert og Anna vill komast...

Sjá meira

Heilsugæslan á Norðurlandi

Kómedíuleikhúsið fer í leikferð um Norðurland núna í vikunni. Sýnt verður á fjórum stöðum og hefst leikurinn á Aureyri, þaðan verður farið á Sauðárkrók svo á Dalvík og loks á Húsavík. Hápólitíski gamanleikurinn Heilsugæslan hefur nú verið sýndur um 30 sinnum víða um landið. Viðtökur hafa verið góðar og er stefnan sett á að sýna Heilsugæsluna um land allt. Leikferðin núna í janúar um Norðurland er því bara byrjunin á árinu en verið er að leggja drög að frekari sýningum á Heilsugæslunni strax í febrúar. Heilsugæslan verður sýnd á Græna hattinum á Akureyri miðvikudaginn 20. janúar kl. 20.30. Daginn...

Sjá meira

Norður-Evrópsk leiklistarhátíð á Akureyri 10.–15. ágúst 2010

Auglýst eftir íslenskum leiksýningumBandalag íslenskra leikfélaga skipuleggur leiklistarhátíð áhugaleikhópa í samvinnu við Norður-Evrópska áhugaleikhúsráðið, NEATA, Norræna menningarsjóðinn, Menntamálaráðuneytið, Akureyrarbæ og Menningarhúsið Hof.Bandalagið býður einni leiksýningu frá hverju landi; Danmörku, Eistlandi, Færeyjum, Finnlandi, Lettlandi, Litháen, Noregi, Svíþjóð og einu Mið-Evrópulandi ásamt tveimur til þremur íslenskum sýningum. Hátíðin verður sett að kvöldi þriðjudagsins 10. ágúst og brottför er sunnudaginn 15. ágúst. Allar leiksýningar og aðrir viðburðir hátíðarinnar verða í Menningarhúsinu Hofi. Verndari hátíðarinnar er forseti Íslands, hr. Ólafur Ragnar Grímsson. Leiksýningarnar:Þema hátíðarinnar er Maður – Náttúra og einkunnarorðin eru Af hjartans listHátíðin beinir sjónum að manneskjunni og samskiptum hennar við náttúruna,...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert