Sindra silfurfiski boðið á Bibu barnaleikhúshátíðina
Þjóðleikhúsið hefur fengið boð um að sýna barnaleikritið Sindra silfurfisk eftir Áslaugu Jónsdóttur á barnaleikhúshátíðinni Bibu, sem haldinn verður í Lundi í Svíþjóð dagana 5.–8. maí í vor.Hátíðin er haldin annað hvert ár og þarna kemur saman barnaleikhúsfólk víða að úr veröldinni til þess að sjá það besta sem hið fjölbreytta sænska barnaleikhús hefur verið að sýna síðustu tvö árin. Einnig hefur verið boðið til hátíðarinnar athyglisverðum sýningum frá öðrum löndum. Í ár var ákveðið að bjóða einni sýningu frá hverju Norðurlandanna á hátíðina. Sérstök dómnefnd hátíðarinnar hefur verið að störfum í allan vetur til þess að velja úr...
Sjá meira


