Author: lensherra

Faust frumsýnt í Borgarleikhúsinu

Föstudaginn 15. janúar kl. 20 verður frumsýnt á Stóra sviðinu ný leikgerð á hinu sígilda verki Faust en fá verk hafa oftar verið endurskrifuð. Í hinni nýju leikgerð fer höfundahópurinn sínum höndum um þessa sígildu sögu og setja hana í  ferskan búning líkt og þau eru þekkt fyrir. Leikrýmið er óvenjulegt því fyrir utan að leika á hinu hefðbundna leiksviði er leikurinn dreginn upp í háloftin yfir áhorfendasalnum. Leikstjórinn Gísli Örn Garðarsson nýtir sem fyrr reynslu sína úr fimleikum til að bæta nýrri vídd inn í leikhúsið. Það er úrvals leikhópur í sýningunni og stendur þar hæst endurkoma Þorsteins...

Sjá meira

Endurómun í Borgarleikhúsinu

Dagana 13. og 14. janúar kynnir Borgarleikhúsið nýjan leikhúsmann til sögunnar, Leif Þór Þorvaldsson sem útskrifaðist frá Listaháskóla Íslands úr Fræði og framkvæmd síðast liðið vor. Útskriftarverk Leifs, Endurómun, kemur á fjalir Borgarleikhússins þann 13. og 14. janúar á Litla sviðinu. Athugið aðeins þessar tvær sýningar. Leikhúsáhugafólki gefst hér einstakt tækifæri á að sjá þetta metnaðarfulla verk sem færði höfundinum hæstu einkunn við útskrift. Verkið var sett á svið í Listaháskólanum síðast liðið vor og segir meðal annars í umsögn prófdómaranna um sýninguna: „Verkið var mjög vel unnið, í raun einstakt og sú upplifun sem áhorfendum var gefin er...

Sjá meira

Leikfélag Kópavogs frumsýnir Umbúðalaust

Ellefu persónur. Ellefu hindranir. Óteljandi möguleikar. Óræðar persónur á óljósum stað eru knúnar til að taka málin í sínar hendur þegar óvænt atvik ber að garði. Saman og hvert í sínu lagi komast þau að því að þáttaskil marka ekki endilega sögulok – og þráðurinn sem þau fylgdu í byrjun er ekki endilega haldreipið sem þarf til að komast í örugga höfn. Er sá sem síðast hlær kannski sá sem náði ekki brandaranum? Leikfélag Kópavogs hefur þá stefnu að setja árlega upp hópvinnusýningu (devised theatre). Skemmst er að minnast vel heppnaðra sýninga eins og Grimms ævintýra, Memento mori og...

Sjá meira

Hugleikur frumsýnir Hannyrðir og hagleiksmenn

Laugardaginn 16. janúar kl. 20.00 frumsýnir leikfélagið Hugleikur fyrstu leiksýninginu sína á nýju ári. Nefnist hún Hannyrðir og hagleiksmenn og er sýnd í húsnæði Hugleiks á Eyjarslóð 9. Höfundur er Sigurður H. Pálsson, en leikstjórn er í höndum Guðmundar Erlingssonar. Athygli skal vakin á því að einungis eru fyrirhugaðar fimm sýningar á Hannyrðum og hagleiksmönnum. Í verkinu segir frá hópi karlmanna sem koma öðru hverju saman og fást í sameiningu við einhvers konar handverk, sitt af hverju tagi. Örlögin leika þá nokkuð grátt, og skörð eru höggvin í hópinn, en þeir taka því sem öðru af stakasta æðruleysi og...

Sjá meira

Tvær aukasýningar á Ástardrykknum í Óperunni

Tveimur aukasýningum á Ástardrykknum hefur verið bætt við í janúar, föstudaginn 15. janúar og laugardaginn 23. janúar kl. 20. Eru þetta allra síðustu sýningar á þessari vinsælu og skemmtilegu sýningu, sem slegið hefur í gegn jafnt hjá áhorfendum sem gagnrýnendum. Í aðalhlutverkum eru Dísella Lárusdóttir, Garðar Thór Cortes, Bjarni Thor Kristinsson, Hallveig Rúnarsdóttir og Ágúst Ólafsson. Ástardrykkurinn eftir Donizetti er bráðskemmtileg gamanópera, sem fjallar um tilraunir ungs manns til að vinna hug ungrar konu. Þegar allt annað bregst leitar hann á náðir kuklara nokkurs sem útvegar honum svokallaðan ástardrykk. Að lokum fer þó allt vel, eins og svo oft...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert