Author: lensherra

Söngleikurinn Aladdín frumsýndur í Norðurpólnum

Leikfélag Menntaskólans við Sund frumsýnir nýjan og bráðskemmtilegan söngleik byggðan á hinni klassísku sögu um Aladdín, miðvikudaginn 17. febrúar í Norðurpólnum, Bygggörðum 5. Leikstjóri verksins sem og höfundur leikgerðar er Kolbrún Björt Sigfúsdóttir. Leikhópurinn samanstendur af ungum og upprennandi leikurum sem unnið hafa hörðum höndum í allan vetur við að gera þessa sýningu að veruleika. Sýningin er unnin í samstarfi við Brite Theater leikhópinn. Aladdín er verk sem flestir ættu að kannast við, sagan af götustráknum sem kemst yfir töfralampa og lendir í miklu ævintýri í kjölfarið. Aladdín kemur sér í mjúkinn hjá konungsfjölskyldunni með svikum og lygum en eins og...

Sjá meira

NEATA Festival 2010 in Iceland

    Photos from the festival are available HERE   The Icelandic Amateur Theatre Association is the festival host in co-operation with: Nordic Culture Fund Icelandic Ministry of Culture Akureyri Municipality Cultural House HOF in Akureyri North European Amateur Theatre Alliance (NEATA) We welcome amateur theatre groups from the NEATA countries and one group each from the CEC and CIFTA regions respectively. See the performance program below. Performances and festival theme; Human – Nature – Art of the Heart. The festival focuses on people and their dealings with nature, both in the sense of natural forces, environment etc, and...

Sjá meira

Umsóknarfrestur fyrir NEATA-hátíð á Akureyri er 15. febrúar

Click here for  English Þann 15. febrúar nk. rennur út frestur fyrir aðildarfélög Bandalagsins til að sækja um að koma með sýningu á Norður-Evrópsku leiklistarhátíðina á Akureyri 10.–15. ágúst 2010. Á hátíðinni verða sýndar 2-3 íslenskar sýningar og mun valnefnd velja þær úr hópi umsækjenda. Þema hátíðarinnar er Maður – Náttúra og einkunnarorðin eru Af hjartans list. Hátíðin beinir sjónum að manneskjunni og samskiptum hennar við náttúruna, bæði hvað varðar óblíð náttúruöflin og mannlega náttúru; eilífa baráttu við hatur, ástríður, fordóma og svo mætti lengi telja. Tímalengd sýninga má ekki fara yfir 90 mínútur. Skila skal umsóknum með myndbandsupptökum...

Sjá meira

Undir hamrinum frumsýnt í Biskupstungum

Föstudagskvöldið 12. febrúar frumsýnir Leikdeild ungmennafélags Biskupstungna í Aratungu, leikritið Undir hamrinum eftir Hildi Þórðardóttur. Leikstjóri er Gunnar Björn Guðmundsson. Æfingar hafa staðið yfir síðan í byrjun janúar og nú er sem sagt komið að því.  Leikurinn gerist í kringum aldamótin 1900 og segir frá samskiptum prestsins og hans fólks á Hvammi og kotunganna á Útnára. Einnig kemur við sögu Úlfljótur digri, sem vantar konu og hefur augastað á annarri prestsdótturinni eða jafnvel báðum. Næstu sýningar verða: 14., 17., 19., 20., 24., 26. og 27, febrúar. Á undan sýningumer boðið upp á léttan leikhúsmatseðil á Kaffi Kletti í Reykholti,...

Sjá meira

Birtingur frumsýndur á Selfossi

Mikið líf, gleði og birta fyllir Litla leikhúsið við Sigtún þessa dagana en Leikfélag Selfoss er nú að komast á lokasprettinn með æfingar á Birtingi eftir Voltaire. Frumsýning verður föstudaginn 12. febrúar en æfingar hafa staðið yfir síðan í byrjun nóvember. Umfang sýningarinnar er mikið á flestum sviðum og gríðarleg vinna og óteljandi handtök að baki henni. Leikstjóri sýningarinnar er Ólafur Jens Sigurðarson en hann er uppalinn hjá Leikfélagi Selfoss og er að leikstýra þar í 4. sinn. Notast er við leikgerð Hafnarfjarðarleikhússins sem unnin er upp úr snilldarlegri þýðingu Halldórs Laxness en þýðingin á einmitt 65 ára afmæli...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert