Author: lensherra

Gerpla frumsýnd í Þjóðleikhúsinu

Saga fóstbræðranna Þorgeirs Hávarssonar og Þormóðar Kolbrúnarskálds hefur lifað með þjóðinni um aldir. Fóstbræðrasaga fjallar um þá Þorgeir og Þormóð og um miðja síðustu öld skrifaði Halldór Kiljan Laxness Gerplu og sagði þar sögu þeirra á nýjan hátt. Næstkomandi föstudag – um 1000 árum eftir að atburðirnir í sögunni eiga að hafa átt sér stað og tæplega 60 árum eftir að Gerpla kom út – verður leikverkið Gerpla í leikstjórn Baltasars Kormáks frumsýnt á Stóra sviði Þjóðleikhússins. Með Gerplu réðst Halldór Laxness í að afhelga hugmyndir okkar um söguöldina og hetjur hennar, en um leið blés hann nýju lífi...

Sjá meira

Freyvangsleikhúsið frumsýnir Dýrin í Hálsaskógi

Laugardaginn 13. febrúar frumsýnir Freyvangsleikhúsið í Eyjafjarðarsveit hið stórskemmtilega og sígilda verk, Dýrin í Hálsaskógi og verður það á fjölum Freyvangsleikhússins fram á vordaga. Gert er ráð fyrir að sýningar standi fram á sauðburð, því nokkrum dögum fyrir frumsýningu er fullbókað á fyrstu þrjár sýningarnar og talsvert farið að bókast á næstu sýningar. Það er að vanda stór hópur sem kemur að uppsetningu á leikverkinu en leikstjóri er Ingunn Jensdóttir. Stór hópur barna tekur þátt í sýningunni og taka þau m.a. þátt í tónlistarflutningi á sviðinu. Einn af leikurunum í þessari uppfærslu Freyvangsleikhússins er að leika í Dýrunum í...

Sjá meira

Snúður og Snælda sýnir Nakinn mann og annan í kjólfötum

Sunnudaginn 21. febrúar kl. 14.00 frumsýnir leikfélagið Snúður og Snælda í Iðnó farsann Nakinn maður og annar í kjólfötum eftir Dario Fo. Leikstjóri Bjarni Ingvarsson. Leikritið gerist að næturlagi þar sem tveir götusóparar eru við vinnu sína. Þeir spjalla saman um hin ólíkustu efni frá hversdagslegu gríni til heimspekilegra atriða og trúarbragða. Ýmsir skrautlegir einstaklingar eiga leið hjá. Þarna koma fram auk götusóparanna vændiskonur, nakinn maður, lögregluþjónn, og blómasali. Leikritið er stórskemmtilegur gamanleikur í einum þætti eftir hinn bráðsnjalla Nóbelsverðlaunahafa Darío Fo. Verkið var sýnt við miklar vinsældir hjá Leikfélagi Reykjavíkur árið 1962 og í Sjónvarpinu árið 1967. Snúður...

Sjá meira

Hamingjan verður ekki hertekin

HalaleikhópurinnSjöundá – Svartfugl Gunnars GunnarssonarLeikstjóri: Ágústa Skúladóttir Svartfugl eftir Gunnar Gunnarsson er mikið meistaraverk. Kannski felst snilldin við það helst í því að láta lesandann hafa samúð með þeim sem þó eru líklega sekir, og jafnvel hálfgerða andúð á fórnarlömbunum. Sagan er mjög dramatísk en frásögnin er eins og Ísland í gamla daga. Fábrotin og látlaus. Sögupersónur eru fátækt sveitafólk. Við erum klárlega ekki í amerískri bíómynd þó svo að úr efninu væri auðveldlega hægt að gera slíka. Sigríður Lára Sigurjónsdóttir skrifar um sýninguna. Í uppsetningunni Sjöundá hjá Halaleikhópnum var sú leið valin að fá söguna í gegnum réttarhöldin....

Sjá meira

Námskeið í leikhúslýsingu fyrir áhugaleikhús

Laugardagana 27. feb., 6.mars og 13. mars frá kl. 9:00 – 13:00 verður boðið upp á námskeið í leikhúslýsingu í Tækniskólanum, Skólavörðuholti. Námskeiðið er ætlað fólki á öllum aldri. Á námskeiðinu eru kennd helstu atriði við hönnun og uppsetningu lýsingar fyrir leiksýningar, tónleika, ráðstefnur o.fl. Fjallað er um eðlisfræði ljóss og litafræði, hugmyndafræði lýsingar, upphengingu og staðsetningar, leikhúsljós og önnur tæki, skipulag, teikningar og fleira. Kennari er Benedikt Axelsson lýsingahönnuður og námskeiðsgjald er 23.000 kr. Hægt er að skrá sig áhttps://www.namsnet.is/tskoli/applications/?progid=8988 Nánari upplýsingar fást í Endurmenntunarskólanum í s. 514 9601 eða á ave@tskoli.is Ath! Námskeiðsgjöld eru óafturkræf nema forföll...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert