Með blóð á vörum
Næstkomandi laugardag, hinn 20. febrúar, frumsýnir unglingadeild Leikfélags Kópavogs nýtt íslenskt leikrit, Blóðsystur, í Leikhúsinu við Funalind 2 í Kópavogi. Hópurinn, sem skipaður er átta upprennandi leikurum, hefur æft og þjálfað af kappi frá í haust undir styrkri stjórn Guðmundar Lúðvíks Þorvaldssonar. Verkið sem nú liggur fyrir er afrakstur þeirrar vinnu en það er orðið til í spunavinnu og höfundar því leikstjórinn Guðmundur Lúðvík Þorvaldsson, aðstoðarleikstjórinn Víðir Örn Jóakimsson og unglingarnir í hópnum, en þeir heita: Agnes Engilráð Scheving, Anna Kristjana Ó. Hjaltested, Bjarni Magnús Erlendsson, Dagbjört Rós Jónsdóttir, Hanna Rún Jónasdóttir, Lovísa Þorsteinsdóttir, María Björt Ármannsdóttir og Sigrún...
Sjá meira


