Author: lensherra

Gullna hliðið í Lyngbrekku

Leikdeild Ungmennafélagsins Skallagríms í Borgarnesi frumsýnir Gullna hliðið í félagsheimilinu Lyngbrekku föstudaginn 5. mars kl. 20.30. Leikstjóri er Rúnar Guðbrandsson.Hátt í 30 manns koma að sýningunni með einum eða öðrum hætti. Gullna hliðið er eftir eitt af öndvegisskáldum Íslendinga, Davíð Stefánsson frá Fagraskógi og hans þekktasta leikrit, enda hefur Gullna hliðið unnið sér verðskuldaðan sess meðal sígildra íslenskra leikrita. Í Gullna hliðinu fylgjast áhorfendur með kerlingu sem leggur á sig mikið ferðalag og ómælt erfiði til að reyna að tryggja að sál Jóns, eiginmanns hennar, komist í Himnaríkisvistina fyrir innan Gullna hliðið. Á því ferðalagi verða margir misjafnlega kynlegir...

Sjá meira

Leikfélag Hörgdæla frumsýnir Lífið liggur við

Fimmtudaginn 4. mars frumsýnir Leikfélag Hörgdæla grafalvarlega skrifstofufarsann Lífið liggur við, eftir Hlín Agnarsdóttur, á Melum í Hörgárdal. Sýningin hefst kl. 20:30. Leikstjóri er Saga G. Jónsdóttir. Þetta er nýlegt leikrit og var fyrst sýnt hjá Stúdentaleikhúsinu árið 2007 í leikstjórn höfundar. Hér er á ferðinni gamanleikur, þó með alvarlegum undirtóni, sem gerist á Íslandi í dag og á vel við, einkum eins og aðstæður eru í þjóðfélaginu. Það eru krepputímar í fyrirtækinu Mannleg samskipti Group þar sem forstjórinn, Guðmundur, stendur á krossgötum. Eiginkonan er að yfirgefa hann og sumir starfsmenn fyrirtækisins kunna ekki almenna mannasiði. Á nokkrum fundum í...

Sjá meira

Söngleikurinn Ólafía frumsýndur á Breiðumýri

Leikdeild Eflingar frumsýnir nýtt leikverk, Ólafíu, á Breiðumýri föstudaginn 26. febrúar. Höfundur er heimamaðurinn Hörður Þór Benónýsson og leikstjóri Arnór Benónýsson. Sýningin inniheldur sautján frumsamin lög eftir Jaan Alavere sem jafnframt er tónlistarstjóri sýningarinnar. Alls koma tuttugu og þrír leikarar fram í sýningunni og þá sér fimm manna hljómsveit um tónlistarflutning. Þessi fjölmenni leikarahópur er samsettur af nokkrum reyndum leikurum sem hafa verið burðarás og kjölfesta leiklistarlífs í Reykjadal síðasta áratuginn, í bland við ungt og efnilegt fólk sem sumt hvert er komið með góða reynslu af því að stíga á svið. Þessi blanda af reynslu eldra fólksins og...

Sjá meira

Hænuungarnir frumsýndir á laugardaginn í Kassanum

Þjóðleikhúsið frumsýnir á laugardaginn Hænuungana, nýtt leikrit eftir Braga Ólafsson í Kassanum, litla sviði Þjóðleikhússins. Frumsýning á nýju leikriti eftir Braga Ólafsson telst óneitanlega til tíðinda þar sem Bragi er einn af okkar bestu rithöfundum. Hænuungarnir eru annað leikrit Braga fyrir leiksvið. Hið fyrra, Belgíska Kongó var sýnt við miklar vinsældir í Borgarleikhúsinu fyrir fáum árum. Nú, rétt eins og þá leggja saman í púkk með Braga þeir Stefán Jónsson, leikstjóri og Eggert Þorleifsson sem fer með aðalhlutverkið. Og með þeim starfar einvala lið listamanna; leikararnir Kristbjörg Kjeld, Ragnheiður Steindórsdóttir, Pálmi Gestsson, Friðrik Friðriksson og Vigdís Hrefna Pálsdóttir. Börkur...

Sjá meira

Örverkið Febrúar frumsýnt í Útgerðinni

Áhugaleikhús atvinnumanna frumsýnir Febrúar, Örverk um áráttur, kenndir og kenjar, þann 25. febrúar kl. 12.30 (í hádeginu). Leikstjóri er Steinunn Knútsdóttir og leikarar Árni Pétur Guðjónsson og Hannes Óli Ágústsson. Frumsýningin sem fer fram í nýju Gjörningarými Hugmyndahúss háskólanna, Útgerðinni, Grandagarði 16 2. hæð, verður einnig send beint út í netleikhúsinu Herbergi 408. Aðgangur er ókeypis. Febrúar er annað verkið í 12 verka röð, Örverk um áráttur, kenndir og kenjar sem hvert um sig tekur á áráttum, kenndum og kenjum sem hafa áhrif á mannlega tilvist í Reykjavík 2010. Hvert verk tekur um 5 – 10 mínútur í flutningi og verða...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert