Leikritunarsjóðurinn Prologos auglýsir eftir umsóknum
Leikritunarsjóðurinn Prologos auglýsir eftir umsóknum vegna sjöttu úthlutunar úr sjóðnum. Umsóknarfrestur er til og með 13. september 2010, en úthlutað verður í október. Annars vegar er auglýst eftir hugmynd að leikriti, hinsvegar eftir hugmynd að leiksmiðju- eða tilraunaverkefni. Nánari upplýsingar og fyrirmæli um gerð umsókna er að finna á heimasíðu Þjóðleikhússins. Umsóknir skal senda með tölvupósti á netfangið prologos@leikhusid.is eða í almennum pósti, merktar: Þjóðleikhúsið, Prologos, Lindargötu 7, 101 Reykjavík. Leikritunarsjóðurinn Prologos hefur nú starfað við Þjóðleikhúsið í rúm tvö ár og er honum ætlað að efla íslenska leikritun og hvetja til nýsköpunar í leikhúsinu. Óhætt er að segja...
Sjá meira


