Ómynd á artFart
Leikhópurinn Fröken Fix, í samstarfi við Leikfélag Hafnarfjarðar, frumsýnir nýtt íslenskt verk næstkomandi föstudag á sviðslistahátíðinni artFart. Verkið ber nafnið Ómynd og er skrifað af Guðrúnu Sóleyju Sigurðardóttur og Aldísi Davíðsdóttur, sem eru jafnframt stofnendur Fröken Fix. Ómynd tekur á innilokun, eymd og erfiðum aðstæðum, en einnig hvernig hægt er að flýja þær með ímyndunaraflinu einu saman. Verkið er því í senn dramatískt, spennandi og sprenghlægilegt. Ómynd fjallar um tvær systur sem eru á flótta undan óskilgreindri ógn. Þær enda ofan í kjallara þar sem þær bíða þess að þriðja systirin komi með mat og aðstoð. Ekki líður á...
Sjá meira


