Author: lensherra

Komið og farið tilnefnt fyrir Íslands hönd á IATA-hátíð

Stjórn Bandalags íslenskra leikfélaga hefur ákveðið að framlag Íslands til IATA leiklistarhátíðarinnar í Tromsö 2011 verði uppsetning Leikfélagsins Peðsins á Komið og farið eftir Samuel Beckett í leikstjórn Guðjóns Sigvaldasonar í íslenskri þýðingu Árna Ibsen. Það verður svo valnefnd á vegum IATA (Alþjóða áhugaleikhúsráðsins) sem sker endanlega úr hvort sýningin verður valin til sýninga í Tromsö og mun það skýrast þann 15. nóvember nk. Valnefnd á vegum Bandalagsins, skipuð þeim Guðfinnu Gunnarsdóttur, Hrund Ólafsdóttur og Herði Sigurðarsyni mælti með Komið og farið umfram sýningu Hugleiks á Rokki. Með úrskurði sýnum sendi valnefndin eftirfarandi greinargerð:Valnefnd vegna leiklistarhátíðar IATA í Tromsö...

Sjá meira

Opið leiklistarnámskeið/leiksmiðja hjá LK

Leikfélag Kópavogs stendur fyrir opnu námskeiði í leiklist nú í september. Í kjölfar námskeiðsins hefjast síðan æfingar á stuttum leikþáttum sem verða frumsýndir í lok október. Námskeiðið er aðallega ætlað þeim sem hafa litla eða enga reynslu af leiklist en er þó opið öllum áhugasömum. Stjórnandi er Hörður Sigurðarson. Námskeiðið  er í þremur hlutum og hefst þriðjudaginn 14. september kl. 19.30 í Leikhúsinu við Funalind 2. Næstu skipti verða síðan fimmtudag 16. sept. á sama tíma og laugardag 18. sept. kl. 10.30. Lengd hvers hluta er ca. 3 klst. Farið verður í ýmis grunnatriði í leiklist og þátttakendur fá að...

Sjá meira

Rocky horror frumsýnt hjá LA

Í kvöld, föstudaginn 10. september, frumsýnir Leikfélag Akureyrar söngleikinn Rocky horror eftir Richard O’Brien í þýðingu Veturliða Guðnasonar. Sýning LA á Rocky Horror verður fyrsta sýningin sem sýnd verður í Hofi, nýju Menningarhúsi á Akureyri. Leikstjóri er Jón Gunnar Þórðarson og um tónlistarstjórn sá Andrea Gylfadóttir. Richard O’Brien skrifaði The Rocky Horror Show árið 1973 og verkið var frumsýnt 19. júní sama ár í London. Sýningin gekk í langan tíma og hefur verið sett upp víða um heim allar götur síðan og alltaf notið mikillar hylli. Árið 1975 var svo gerð kvikmynd eftir söngleiknum; The Rocky Horror Picture Show.Í...

Sjá meira

Úr heimi leiksviðslistanna – Námskeið hjá Endurmenntun HÍ

Í október stendur Endurmenntunarstofnun Háskóla Íslands fyrir námskeiði sem ber yfirskriftina Úr heimi leiksviðslistanna. Fyrirlesari er Jón Viðar Jónsson leiklistarfræðingur. Á námskeiðinu er farið yfir leiklistarsöguna frá fyrstu heimildum um hana, allt til okkar daga. Fyrirlestrarnir verða á mánudögum kl. 20.15, skráningarfrestur er til 27. september 2010 og hægt er að skrá sig hér. Er leiklistin sprottin upp úr helgisiðum og iðkun trúarbragða? Hvers vegna er kór í grískum harmleikjum? Hvernig gat kaþólska miðaldakirkjan bæði verið á móti leiklistinni og með henni? Hvers vegna voru engar leikmyndir í leikhúsi Shakespeares? Hvaðan koma fjarvíddarleiksviðið og leiksviðsramminn? Hver er hinn dularfulli...

Sjá meira

Skepna frumsýnt á Norðurpólnum

Þann 10. September nk. hefjast sýningar á leiksýningunni Skepnu á Norðurpólnum, Bygggörðum 5, Seltjarnarnesi. Skepna er kolsvört kómedía eftir kanadísku leikskáldin Daniel MacIvor og Daniel Brooks. Hún fjallar um misfurðulega einstaklinga sem virðast ekki tengjast við fyrstu sýn. Verkið er einleikur og fer Bjartmar Þórðarson með öll hlutverk sýningarinnar. Leikstjórn er í höndum Guðjóns Þorsteins Pálmarssonar og tekur verkið rúman klukkutíma í flutningi. Óframfærinn unglingur sem er með morð nágrannans á heilanum, óvirkur alki sem öðlast von þegar hann dreymir kvikmyndahandrit, Alli og Nína sem rífast um egglos og svo sögumaðurinn Adam, sem segist ekki vera til. Allar tengjast...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert