Metaðsókn á Melum í Hörgárdal
Leikfélag Hörgdæla sýnir um þessar mundir leikritið Með fullri reisn fyrir fullu húsi kvöld eftir kvöld. Þegar hafa verið sýndar 18 sýningar en áætlaðar eru 30 sýningar. Uppselt er á þær allar og nokkur hundruð manns eru á biðlista. Það stefnir í að áhorfendafjöldi verði hátt í 3.000 manns. Síðasta sýning verður 7. maí, en það verður þrítugasta sýning. Leikarar í sýningunni eru flestallir bændur í Hörgársveit og þegar komið er fram í maí verður að hætta sýningum þar sem sauðburður verður kominn í fullan gang. Þeim sem ekki komast á sýninguna er bent á að á vef Hörgársveitar...
Sjá meira


