Bjart með köflum frumsýnt 8. apríl
Þjóðleikhúsið frumsýnir þann 8. apríl, Bjart með köflum, nýtt leikrit með söngvum eftir Ólaf Hauk Símonarson. Ólafur Haukur hefur skrifað mörg geysivinsæl leikrit sem sýnd hafa verið í Þjóðleikhúsinu á síðustu áratugum, meðal annars Gauragang, Þrek og tár, Hafið, Græna landið og Bílaverkstæði Badda, sem voru sett á svið undir stjórn Þórhalls Sigurðssonar. Þeir félagar færa okkur nú glænýtt og kraftmikið leikrit með sívinsælli tónlist frá ofanverðum sjöunda áratugnum. Árið 1968 er ungur piltur úr Reykjavík, Jakob, sendur í sveit að bænum Gili þar sem nútíminn virðist enn ekki hafa haldið innreið sína, og fjölskyldan stritar við að yrkja...
Sjá meira


