Góð Einkamál á Grandanum
HugleikurEinkamál.isLeikstjórar: Hulda Hákonardottir og Þorgeir Tryggvason Hugleikur fumsýndi á föstudag leikritið Einkamál.is eftir Árna Hjartarson. Það er skemmst frá að segja að Hugleikur sannar það enn einu sinni að leikfélagið er í fremstu röð þegar kemur að því að setja á svið ný íslensk leikverk. Verk Árna er í senn fyndið og harmrænt í eindfaldri sögu í anda klassískra grískra leikbókmennta. Ég ætla ekki að ljóstra upp aðalfléttu verksins sem er alveg stórskemmtileg og óvænt og drífur verkið áfram af fítonskrafti. Árni hefur skapað verk sem er bæði tímalaust og tekst á við samtíðarmál eins og staðgöngumæður og firringu...
Sjá meira


