Author: lensherra

Hugleikur til Danmerkur fyrir Íslands hönd

Leiksýning Hugleiks, Sá glataði, hefur verið valin til að fara sem fulltrúi Íslands á NEATA-leiklistarhátíðina í Sønderborg í Danmörku dagana 31. júlí til 5. ágúst í sumar. Leikstjóri verksins er Ágústa Skúladóttir og handritshöfundur Sigríður Lára Sigurjónsdóttir. Tvær umsóknir bárust um að fara á hátíðina en auk Hugleiks sótti Leikfélagið Sýnir um að fara með sýninguna Tristram og Ísönd. Þetta er í sjötta skipti sem verk í leikstjórn Ágústu Skúladóttur er valið til að fara á NEATA-hátíð. Árið 2002 fór Leikfélag Kópavogs með Grimms til Svíþjóðar, árið 2004 fór Hugleikur með Undir hamrinum til Eistlands, 2006 fóru Hugleikur og...

Sjá meira

Breskur leiklistarháskóli með inntökupróf á Íslandi

Rose Bruford College of Theatre and Performance, einn af fremstu leiklistarskólum Evrópu, býður upp á nám á öllum sviðum leikhússins. Skólinn bíður upp á nám til BA gráðu í almennri leiklist, leiklist og tónlist, Amerískum leiklistarhefðum, Evrópskum leiklistarhefðum, búningahönnun, ljósahönnun, hljóðhönnun, sviðsstjórn, sviðslistum og leikhúshönnun. Og MA gráðu í leikhús fyrir unga áhorfendur og Ensemble Theatre. Inntökupróf og viðtöl fyrir allar deildir fara fram í Hinu húsinu, Reykjavík 3. og 4. mars fyrir inngöngu í september 2012. Nánari upplýsingar og skráning á admission@bruford.ac.uk og www.bruford.ac.uk...

Sjá meira

Halinn í hassinu

Hassið hennar mömmu eftir Daríó FóHalaleikhópurinnLeikstjórar:  Margrét Sverrisdóttir og Oddur Bjarni Þorkelsson Þann tíunda febrúar síðastliðinn frumsýndi Halaleikhópurinn enn eitt leikverkið í leihúsi sínu að Hátúni 12 í Reykjavík. Það er  alltaf jafn merkilegt að sjá sýningar Halans þar sem fatlaðir og ófatlaðir vinna saman að því að brjóta niður múrana.  Hópurinn hefur komið víða við og safnað mikilli reynslu. Þessi árin rúlla þau upp hverri stórsýningunni af annarri  og alltaf bætist nýtt fólk í hópinn. Leikstjórarnir Margrét og Oddur Bjarni setja nú upp með Halanum í annað sinn og tekst afar vel upp.  Í fallegri leikskránni stendur að...

Sjá meira

Leikfélag Selfoss æfir Sólarferð

Leikfélag Selfoss tekur stefnuna til sólríkari stranda í vetur en nú standa yfir æfingar á leikritinu Sólarferð eftir Guðmund Steinsson og hefur Rúnar Guðbrandsson verið fenginn til að leikstýra. Leikritið gerist á miðjum áttunda áratugnum og fjallar um ferð nokkurra íslenskra hjóna til Costa del Sol. Það gengur á ýmsu og tekið er á því sem gerist á gamansaman hátt en þó með alvarlegum undirtón. Stefnt er að því að frumsýning verði 24. febrúar n.k....

Sjá meira

Aukasýningar á Ég er vindurinn

Undanfarnar vikur hefur leikfélagið Sómi þjóðar sýnt uppsetningu sína á verki Jon Fosse, Ég er vindurinn, við frábærar viðtökur. Uppselt hefur verið á nær allar sýningar og einnig hafa leikdómar um sýninguna verið vægast sagt jákvæðir. Sökum þess hefur Sómi þjóðar ákveðið að sýna nokkrar aukasýningar á verkinu. Leikstjóri er Ingibjörg Huld Haraldsdóttir en þýðinguna gerði Hilmir Jensson. Sýningarnar eru sunnudaginn 19. feb, mánudaginn 20. feb. og föstudaginn 24. feb og hefjast þær allar kl. 19.30. Jon Fosse (f. 1959) er einn af ástsælustu rithöfundum Noregs og eitt vinsælasta núlifandi leikskáld í heiminum í dag. Settar hafa verið upp...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert