Baðstofan frumsýnd í Félagslundi á Reyðarfirði
Föstudaginn 10.02 frumsýnir Leikfélag Reyðarfjarðar nýtt íslenskt verk, Baðstofuna eftir Gunnar Ragnar Jónsson. Í litlu koti í afskekktum dal húkir fjölskylda og lifir á litlu. Eftir að morð er framið á bæ í nágrenninu ber förumann að garði. Við það færist fjölbreytni í líf fjölskyldunnar og undarlegir atburðir fara að gerast. Hér er á ferðinni gamansamur leikur að þjóðsagnaarfi þjóðarinnar með tilheyrandi drunga og spennu. Formaður Leikfélags Reyðarfjarðar, Gunnar Ragnar Jónsson, setti verkið saman eftir mikla hugmyndavinnu leikhópsins. Þetta átti þó aldrei að verða leikrit. Upphaflega átti að vera á ferðinni stutt skemmtidagskrá í tilefni menningarhátíðarinnar Dagar Myrkurs. Fljótt...
Sjá meira


