Tengdó leiksýning ársins á Grímunni 2012
Grímuverðlaunin voru afhent í tíunda sinn fyrr í kvöld, við hátíðlega athöfn í Silfurbergi í Hörpunni. Gríman er uppskeruhátíð leikhúsfólks og það er Leiklistarsamband Íslands, heildarsamtök sviðslistanna á Íslandi, sem hefur veg og vanda að Grímuverðlaununum. Veitt voru verðlaun í 18 flokkum sviðslista auk heiðursverðlauna veitt þeim listamanni er skilað hefur framúrskarandi ævistarfi í þágu sviðslista. Alls komu 89 sviðslistaverkefni til álita til Grímunnar í ár sem voru skoðuð af fagnefndum Grímunnar með verðlaunin eftirsóttu í huga. Þar af voru 23 danssýningar, 9 barnasýningar og 7 útvarpsverk. Við verkin störfuðu yfir eitt þúsund listamenn, tæknifólk og starfsfólk leikhúsanna. Tengdó...
Sjá meira


