Author: lensherra

Leikfélagið Sýnir leitar leikara í sumar

Leikfélagið Sýnir hyggst sýna útileiksýningu í Elliðaárdal um miðjan júlí, samansetta úr nokkrum stuttum leikverkum sem fléttað verður saman í heildstæða sýningu. Leikfélagið auglýsir eftir áhugasömum leikurum, til að taka þátt í sýningunni. Fyrsti hittingur verður sunnudagskvöldið 24. júní kl. 20. verður hann við gömlu rafstöðina í Elliðaárdal (sjá mynd). Uppsetningu leikfélagsins á Sjö samúræum, sem fyrirhuguð var í sumar, hefur af ýmsum ástæðum verið frestað til næsta sumars. Tekið skal fram að hvert verk verður stutt og nokkrir leikstjórar munu skipta verkunum á milli sín þannig að æfingar er auðvelt skipuleggja æfingar svo öllum henti. Sýningartímabilið verður einnig...

Sjá meira

Pétur og úlfurinn í Selskógi

Leikfélag Fljótsdalshéraðs er um þessar mundir að hefja æfingar á Pétri og úlfinum. Stefnt er á að frumsýna verkið í Selskógi 19. júlí. Sýningin er sett upp í samstarfi við Samfélagssjóð Alcoa og Vinnuskóla Fljóstdalshéraðs en leikarar eru allir á grunnskóla aldri. Leiksstjóri verksins er Pétur Ármannsson og mun hann í samstarfi við leikhópinn semja leikgerð við þetta magnaða tónverk. Myndin er tekin af æfingu í Selskóginu. Á henni er hluti leikhópsins ásamt Pétri Ármannssyni leiksstjóra og Brogan Jayne Davison sem aðstoðar við dans og...

Sjá meira

Hringurinn í Þjóðleikhúsinu 22. júní

Leiksýning Leikfélags Kópavogs, Hringurinn varð að þessu sinni fyrir valinu sem athyglisverðasta áhugaleiksýning ársins. Hún verður sýnd í Kassanum 22. júní nk. kl. 20.00 Aðeins er um eina sýningu að ræða. Verkið er eftir Hrefnu Friðriksdóttur, leikstjóri er Hörður Sigurðarson, Sváfnir Sigurðarson leggur til tónlist og hljóðmynd og Skúli Rúnar Hilmarsson hannar lýsingu. Fjölmargir aðrir leggja hönd á í sýningunni og þar á meðal eru 12 leikarar. Guðmann Þór Bjargmundsson sér um myndvinnslu, Rúna Sif Harðardóttir um förðun og að auki koma fjölmargir að smíði leikmyndar og leikmuna. Evgenía lifir fábrotnu lífi og sinnir tilbreytingasnauðu starfi á opinberri stofnun. Dag einn...

Sjá meira

Ráðstefna um leikhús og leiklist í skólastarfi

Sjöunda ráðstefna Norrænu Drama Boreale samtakanna verður haldin í Reykjavík frá 6. til 10. ágúst 2012. Skipuleggjandi ráðstefnunnar er FLÍSS, Félag um leiklist í skólastarfi og er ráðstefnan skipulögð í samstarfi við Háskóla Íslands, menntavísindasvið. Þema ráðstefnunnar er frumefnin fjögur: jörð, loft, eldur og vatn. Undirliggjandi þema á ráðstefnunni er húmor í kennslu en fyrirlesarar og kennarar eru beðnir að vinna efni sitt út frá þema ráðstefnunnar. Til námskeiðahalds og fyrirlestra hafa verið fengnir fræðimenn frá öllum heimshornum. Þátttakendum ráðstefnunnar gefst kostur á að taka þátt í fjölda mismunandi vinnusmiðja, hlusta á fyrirlestra og kynningar á nýlegum rannsóknum tengdum...

Sjá meira

Gríman 2012 – Heiðursverðlaun

Leikmyndahöfundunum Steinþóri Sigurðssyni og Sigurjóni Jóhannssyni voru veitt heiðursverðlaun Leiklistarsambands Íslands árið 2012 á Grímuhátíðinni í gærkvöldi. Vigdís Finnbogadóttir, heiðursverðlaunahafi ársins 2006, fyrrum leikhússtjóri Leikfélags Reykjavíkur og forseti Íslands, afhenti þeim verðlaunin. Steinþór og Sigurjón eru þeir tveir leikmyndahöfundar landsins, sem settu hvað mestan svip á þær leiksýningar sem sýndar voru á tveim helstu leiksviðum höfuðborgarinnar á ofanverðri 20. öld. Steinþór á litla sviðinu í Iðnaðarmannahúsinu við Tjörnina, Iðnó; þar sem hugmyndaauðgi hans náði að töfra fram ótrúlegustu sviðsmyndir við hinar knöppu aðstæður. Sigurjón á stóra sviðinu í álfaborginni við Hverfisgötu, Þjóðleikhúsinu; þar sem veröldin var hringsvið og leikhústurn,...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert