Kameljón frumsýnt í Kúlunni
Miðvikudaginn 22. ágúst verður leikverkið Kameljón eftir Álfrúnu Helgu Örnólfsdóttur, Friðgeir Einarsson og Margréti Örnólfsdóttur frumsýnt í Kúlunni, litla sviði Þjóðleikhússins. Verkið er einleikur og fer Álfrún Helga Örnólfsdóttir með hlutverk Kameljónsins. Texta verksins gerði Margrét Örnólfsdóttir og Friðgeir Einarsson leikstýrir. Einstök aðlögunarhæfni og sífelld hamskipti valda því að Kameljónið veit ekki lengur hver grunnlitur þess er. Hefur hún, Kameljónið, eitthvert eiginlegt sjálf eða er hún aðeins endurspeglun þeirra sem á vegi hennar verða í lífinu? Lituð af umhverfinu sem hún hrærist í hverju sinni? Hún ákveður að hafa uppi á sjálfri sér, hvað sem það kostar, því maður...
Sjá meira


