Borgarinnan frumsýnd á Akureyri
Í tilefni afmælis Akureyrarbæjar setur Litla Kompaníið, í samstarfi við Leikfélag Akureyrar, upp leikverkið Borgarinnan eftir Sögu Jónsdóttur sem jafnframt er leikstjóri. Verkið verður frumsýnt í Samkomuhúsinu þann 30. ágúst en það er byggt á atriðum úr ævi Vilhelmínu Lever, fyrstu konunnar sem kaus til bæjarstjórnar á Akureyri, 19 árum áður en konur fengu kosningarétt! Sýnt er í Samkomuhúsinu. Sýningin spannar rúmlega 40 ár þar sem við kynnumst mörgum litríkum persónum og gluggum inn í stórmerkilega viðburði í lífi Vilhelmínu sem og sögu Akureyrar. Aðeins verða sýndar örfáar sýningar og eru þær sem hér segir: 30. ágúst – Frumsýning31....
Sjá meira


